Nýr öflugur samstarfsvettvangur
Orkuveita Reykjavíkur (OR), sem er eitt stærsta jarðhitafyrirtæki heims, leiðir samstarfið og aðild að því eiga einnig þrjár stærstu verkfræðistofur landsins - Efla, Mannvit og Verkís - Jarðboranir,
Íslenskar orkurannsóknir og arkitektastofurnar T.ark Teiknistofa og Landslag.
Markmið samstarfsins er að opna fyrirtækjunum nýjar leiðir til að koma þekkingu sinni á markað því eftirspurn eftir reynslu á öllum sviðum jarðhitanýtingar fer hratt vaxandi um víða veröld.
Samstarfinu hér á landi er komið á í framhaldi af samstarfsyfirlýsingu OR og japanska stórfyrirtækisins Mitsubishi Heavy Industries (MHI),
sem undirrituð var í Tókýó 15. apríl sl. Í samræmi við hana er OR að skapa breiðan vettvang íslenskrar sérþekkingar í jarðhitanýtingu.
Sá vettvangur hefur nú tekið á sig mynd og mun frekari þróun hans velta á þeim verkefnum sem aðilarnir kjósa að koma með inn í samstarfið.
Í samstarfsyfirlýsingu OR og MHI og yfirlýsingunni sem undirrituð var í dag er reiknað með að frumkvæði að nýjum verkefnum geti komið frá hvaða aðila samstarfsins sem er,
sem þá eigi bakland og stuðning í öðrum aðilum samstarfsins við frekari þróun tækifæranna.
Í viljayfirlýsingunni felst ekki skuldbinding aðila um slíka þátttöku heldur er skapaður farvegur fyrir formlegt samstarf sem tekin verður afstaða til í hverju tilfelli fyrir sig.