Rekstrarsvið EFLU leitar að bókara
Ert þú hárnákvæmur bókari? Við erum að leita að öflugum bókara á rekstarsvið EFLU.
Bókari í reikningshald, verkbókhald og reikningagerð
EFLA leitar að öflugum starfsmanni á rekstarsvið fyrirtækisins. Starfið felur í sér vinnu við fjárhagsbókhald, reikningagerð, verkbókhald, afstemmingar og önnur störf er snúa að bókhaldi. Starfið krefst nákvæmni og sjálfstæðra vinnubragða sem og hæfni til að starfa í hóp.
Hæfniskröfur
- Viðurkenndur bókari og/eða hagnýt reynsla af bókhaldsstörfum
- Haldgóð þekking á fjárhags- og verkbókhaldi
- Góð þekking á Navision
- Góð þekking á Microsoft Excel
- Nákvæm vinnubrögð og vandvirkni
- Þjónustulipurð og samstarfshæfni
Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast rafrænt í gegnum vefsíðu EFLU , fyrir 1. október næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með þær sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 412 6000 eða job@efla.is