Fréttir


Fréttir

Samfélagssjóður auglýsir eftir umsóknum

7.10.2020

Auglýst er eftir umsóknum í samfélagssjóð EFLU og er umsóknarfrestur til og með 15. október næstkomandi. 

  • Samfélagssjóður EFLU 2020
    Samfélagssjóður EFLU auglýsir eftir umsóknum.

Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til jákvæðra og uppbyggjandi verkefna sem nýtast samfélaginu. Markmið sjóðsins er að styðja við framtak einstaklinga og hópa, sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Fjölmörg áhugaverð verkefni hafa fengið fjárstyrk úr sjóðnum, þar á meðal verkefni sem fólst í uppsetningu matjurtakassa við Hlíðarbæ

Samfélagssjóðnum er ætlað að styrkja við verkefni á eftirtöldum sviðum:

  • Menntamál
  • Menning og listir
  • Íþrótta- og æskulýðsmál
  • Umhverfismál
  • Rannsóknir
  • Góðgerðar- og félagsmál

Umsóknir þurfa að berast í gegnum rafrænt umsóknarform á vef EFLU fyrir 15. október næstkomandi og verður þeim öllum svarað. Reiknað er með að úthlutun fari fram í desember 2020.

Umsókn í samfélagssjóð

Nánar um samfélagssjóð EFLU.