Fréttir


Fréttir

Samfélagssjóður EFLU auglýsir eftir umsóknum

Samfélagssjóður EFLU, Umsókn um styrk, Styrktarumsókn, Styrkur, Fjárstuðningur

1.10.2018

EFLA starfrækir samfélagssjóð sem veitir styrki til jákvæðra og uppbyggjandi verkefna í samfélaginu. Auglýst er eftir umsóknum í sjóðinn og er umsóknarfrestur til 15. október næstkomandi. 

  • Samfélagssjóður EFLU
    Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til góðra verkefna samfélaginu til heilla.

Markmið samfélagssjóðs EFLU er að styðja við framtak einstaklinga og hópa, sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar sinnum á ári og hafa fjölmörg áhugaverð verkefni fengið fjárstyrk.

Umsóknir þurfa að berast í gegnum vefsíðu EFLU fyrir 15. október og verður þeim öllum svarað.

Nánar um samfélagssjóðinn.