Fréttir


Fréttir

Samfélagssjóður EFLU auglýsir eftir umsóknum

11.10.2021

Auglýst er eftir umsóknum í samfélagssjóð EFLU og er umsóknarfrestur til og með 18. október næstkomandi. Samfélagssjóðurinn veitir styrki til jákvæðra og uppbyggjandi verkefna sem nýtast samfélaginu.

  • Samfélagssjóður EFLU 2021
    Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til fjölbreyttra verkefna sem nýtast samfélaginu.

Markmið sjóðsins er að styðja við framtak einstaklinga og hópa, sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi. Síðustu ár hafa mörg eftirtektarverð verkefni hafa fengið fjárstyrk úr sjóðnum og öðlast þannig betra brautargengi. 

Samfélagssjóðnum er ætlað að styrkja við verkefni á eftirtöldum sviðum:

  • Menntamál
  • Menning og listir
  • Íþrótta- og æskulýðsmál
  • Umhverfismál
  • Rannsóknir
  • Góðgerðar- og félagsmál

Hægt er að senda umsóknir í samfélagssjóðinn gegnum rafrænt umsóknarform á vef EFLU fyrir 18. október 2021. Öllum umsóknum verður svarað.

Sækja um í samfélagssjóð

Nánar um samfélagssjóð EFLU.