Fréttir


Fréttir

Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til átta verkefna

8.12.2020

Samfélagssjóður EFLU hefur veitt styrki til átta uppbyggjandi og jákvæðra verkefna sem nýtast samfélaginu. 

  • Styrkhafar úr Samfélagssjóði EFLU 2020
    Styrkhafar úr Samfélagssjóði EFLU 2020

Markmið með styrkjum úr Samfélagssjóðnum er að styðja við framtak einstaklinga og hópa sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi. 

Sjóðnum bárust 133 umsóknir í ár sem voru metnar út frá markmiðum sjóðsins, markmiðum EFLU og áherslum nefndarinnar.

Verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni

  • Fjölskylduhjálp Íslands
    Stuðningur til kaupa á matvælum svo samtökin geti veitt nauðsynlega aðstoð til skjólstæðinga sinna
  • Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
    Stuðningur til að aðstoða þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu 
  • Soroptimistaklúbbur Suðurlands
    Stuðningur við að koma á fót - og reka - úrræði fyrir þolendur kynbundins ofbeldis (líkamlegs, andlegs eða kynferðislegs) á Suðurlandi
  • Ungfrú Ragnheiður - Rauði krossinn við Eyjafjörð
    Stuðningur til að veita einstaklingum með vímuefnavanda heilbrigðisaðstoð og stuðning eftir hugmyndafræði skaðaminnkunar
  • Skautadeild Aspar
    Stuðningur til að koma upp myndrænni skautaæfingaskrá fyrir fatlaða iðkendur til að nota á æfingum í listskautum. Æfingakerfið er byggt á kerfi Special Olympics
  • Braggaparkið
    Stuðningur til að koma upp innanhússaðstöðu fyrir alla sem stunda hjólabretti, hlautahjól, línuskauta og BMX á Akureyri
  • Juraj Hubinák
    Fuglarnir í Önundarfirði verða að listaverki á húsgöflum Flateyrar. Fyrirhugað er að fegra umhverfið og stuðla að fræðslu með handmáluðum myndum af öllum helstu fuglategundum á svæðinu

  • Sveitakarlinn
    Stuðningur til að dreifa ull sem til fellur í ullarvinnslu, og yrði annars hent,  til landgræðslu hjá Hekluskógum. Markmiðið er að ullin bindi gróður og hægji á foki

Myndir af styrkhöfum - Smelltu á örvarnar til að skoða

Eiríkur - Braggaparkið

Soroptimistaklúbbur Suðurlands

Ungfrú Ragnheiður - Rauði krossinn við Eyjafjörð

Mæðrastyrksnefnd

Jean - Fuglar Flateyrar

Juraj - Fuglar Flateyrar

Skautadeild Aspar

Hulda og Tyrfingur - forsvarsmenn Sveitakarlsins


Við óskum forsvarsmönnum ofangreindra verkefna til hamingju með styrkinn og megi þeim vegna sem allra best. Einnig þökkum við öllum þeim sem sóttu um styrk í Samfélagssjóð EFLU og minnum á að tekið er á móti umsóknum í sjóðinn allt árið í kring.

Nánar um samfélagssjóð EFLU