Samfélagssjóður EFLU veitir úthlutun til 6 verkefna
Úthlutun, Styrkur, Sjóður, Samfélagssjóður, Umsóknir, Fjárstyrkur
Samfélagssjóður EFLU hefur veitt sína tólftu úthlutun. Að þessu sinni bárust 76 umsóknir og hlutu 6 verkefni styrk. Umsóknir voru metnar út frá markmiðum sjóðsins, markmiðum EFLU og áherslum nefndarinnar.
-
Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til góðra verkefna samfélaginu til heilla.
Verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni eru
- Skátafélagið Mosverjar
Uppbygging á aðstöðu og búnaði skátafélagsins - Ástráður - kynfræðslufélag læknanema
Fjármögnun forvarnarstarfs í kynheilbrigði - Fjölskylduhjálp Íslands
Mataraðstoð - Lionsklúbburinn Hængur
Kaup á plöntum, áburði og áhöldum vegna skógræktar - Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Fræðsla um eldvarnir fyrir nemendur í 3. bekk í grunnskólum landsins - Women Political Leader Forum
Heimsþing kvenleiðtoga í stjórnmálum
Við óskum forsvarsmönnum ofangreindra verkefna til hamingju með styrkinn og megi þeim vegna sem allra best. Einnig þökkum við öllum þeim sem sóttu um styrk í samfélagssjóð EFLU og minnum á að tekið er á móti umsóknum í sjóðinn allt árið í kring.