Fréttir


Fréttir

Samkeppni um hönnun brúar yfir Fossvog

29.1.2020

Teymi EFLU og Studio Granda hefur verið valið sem eitt af sex teymum sem taka þátt í samkeppni um hönnun brúar yfir Fossvog, milli Reykjavíkurflugvallar og Kársness. Brúin mun þjóna almenningssamgöngum, gangandi og hjólandi vegfarendum og gegna lykilhlutverki í 1. áfanga Borgarlínu. 

  • EFLA - brúarhönnun
    EFLA har gjennomført prosjekteringsarbeider på mer enn 50 eksisterende brukonstruksjoner siden 2014.

EFLA og Studio Granda mynda eina íslenska teymið sem komst í gegnum forval á vegum Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar. Alls tóku 17 teymi þátt í forvalinu. Í hinum teymunum er að finna mörg af virtustu fyrirtækjum í Evrópu á sviði brúarverkfræði og arkitektúrs.

Fjölbreytt brúarverkefni 

Á EFLU starfar hópur verkfræðinga sem síðustu ár hefur sérhæft sig í fjölbreyttum brúarverkefnum á Íslandi og í Noregi. Samstarf EFLU og Studio Granda í brúarhönnun hefur verið farsælt og skilað mörgum vel heppnuðum mannvirkjum. Nægir þar að nefna göngubrýr yfir Hringbraut og Njarðargötu, yfir Úlfarsá og yfir Reykjanesbraut, bæði við Stekkjarbakka og í Hafnarfirði. Auk þess hefur teymið síðustu ár hannað göngu- og hjólabrýr sem byggðar hafa verið í Noregi.

Gert er ráð fyrir að niðurstaða í hönnunarsamkeppninni liggi fyrir í maí.

Nokkur verkefni EFLU á sviði brúarhönnunar

Brú yfir Eldvatn - EFLABrú yfir Eldvatn.

BreidholtsbrautBrúin yfir Breiðholtsbraut tengir saman Fella- og Seljahverfi.

Krýsuvíkurvegamót - EFLABrúin yfir Krýsuvíkurvegamót.

Ullevaal at nightGöngu- og hjólabrú við Ullevaal þjóðarleikvanginn í Osló.

Bergen bruGöngu- og hjólabrú í Bergen, Noregi.

Hringbraut - brýrGöngu- og hjólabrú yfir Hringbraut.