Fréttir


Fréttir

Samningur um samstarf EFLU og HÍ

29.11.2012

Í síðasta mánuði var undirritaður samningur um samstarf um kennslu og rannsóknir á sviði mannvirkjahönnunar milli EFLU og Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar Háskóla Íslands.
  • Undirritun samninga
    Myndin er tekin við undirritun samningsins. Á henni eru: Guðmundur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri. Sigurður Magnús Garðarsson, deildarforseti umhverfis- og byggingarverkfræðideildar. Guðmundur Freyr Úlfarsson, aðstoðardeildarforseti umhverfis- og byggingarverkfræðideildar og Baldvin Einarsson, sviðsstjóri rannsókna og þróunar.

Samningurinn er framhald eldri samnings frá árinu 2007.
Með samningnum kostar EFLA hluta af dósentstöðu við deildina næstu 3 árin. Gegnir Baldvin Einarsson, sviðsstjóri Rannsókna og þróunar hjá EFLU, stöðunni og kennir námskeið um hönnun stálvirkja.