Fréttir


Fréttir

Unga fólkið á EFLU

26.6.2012

Starfsfólk EFLU á Íslandi um þessar mundir er rúmlega 220 talsins. Þar af eru yfir 40 sem eru 30 ára eða yngri og 75 manns í fyrirtækinu eru 35 ára eða yngri.
  • Yngra starfsfólk EFLU

Við viljum að unga fólkið eigi framlag

Starfsfólk EFLU á Íslandi um þessar mundir er rúmlega 220 talsins. Þar af eru yfir 40 sem eru 30 ára eða yngri og 75 manns í fyrirtækinu eru 35 ára eða yngri. Guðmundur Þorbjörnsson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins en hann segir þessar tölur koma mörgum á óvart: "Margir virðast halda að í verkfræðifyrirtækjum starfi fyrst og fremst mosavaxnir verkfræðingar," segir Guðmundur og brosir "en því fer fjarri. Þetta er mjög lifandi og dýnamískt umhverfi og auðvitað hefur unga fólkið mikil áhrif á hvernig blærinn í okkar fyrirtæki er."
Guðmundur segir ennfremur að íslenskar verkfræðistofur gegni stóru hlutverki í þjálfun ungs tækni- og vísindafólks á Íslandi: "Stærri stofurnar eru nokkurs konar uppeldisstöðvar. Við ölum upp lykilfólk sem í framtíðinni mun byggja upp innviði samfélagsins og atvinnulífsins. Það er mjög mikilvægt að þessari kynslóð séu sköpuð áframhaldandi tækifæri á Íslandi."

Hvers er krafist af unga fólkinu?

Guðmundur segir mikilvægt að nýir starfsmenn EFLU fái rétta leiðsögn. Þeim til leiðsagnar er skipaður svokallaður "fóstri" sem fylgir viðkomandi fyrstu mánuðina. "Unga fólkið gengur ekki fullskapað inn í verkefnin og við þurfum að leiðbeina þeim," segir Guðmundur og bætir við að þó sé nauðsynlegt fyrir nýliða að hafa góða undirstöðu á einhverju af helstu sviðum fyrirtækisins. "Grundvallaratriðið er að nýir starfsmenn spyrji spurninga því aðeins þannig þroskast þekkingin. Þetta er efnilegt fólk sem þarf ekki að óttast að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum. Við viljum að það eigi framlag. En það er jafnframt mikilvægt að meta hvert tilvik fyrir sig og þekkja mörkin."

Sumarstarfsmenn safna reynslu

Guðmundur segir flesta starfsmenn fyrirtækisins fastráðna en EFLA taki þó inn námsmenn á sumrin: "Við gefum þeim tækifæri til að taka þátt í raunverulegum verkefnum og þeir standa sig undantekningarlaust vel. Eins höfum við skipulagt verkefni, til dæmis í samstarfi við Nýsköpunarsjóð en einnig rannsóknarverkefni sem við skilgreinum og vinnum á eigin vegum. Þá getum við oft nýtt sumarfólkið mjög vel í áhugaverðum hlutum, þar sem hugmyndaflugið fær að njóta sín vel."
EFLA starfar mikið í alþjóðlegu umhverfi og það er ennfremur áhugaverður vinkill fyrir unga fólkið og bætir verulega í reynslubankann.

Fólk með ný viðmið

EFLA hefur getið sér gott orð fyrir umhverfisstefnu sína. Leitast er við að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar í samræmi við vottað umhverfisstjórnunarkerfi fyrirtækisins.
Guðmundur segir yngri kynslóðina hafa annars konar meðvitund og skilning, bæði á umhverfinu og samfélaginu. "Við hvetjum unga fólkið til að deila hugmyndum sínum með okkur. Það er raunar mikið af ungu fólki hjá okkur sem vinnur á þessum nýju sviðum," segir Guðmundur en bætir því við að yngstu kynslóðinni sé þó dreift á öll svið fyrirtækisins.

Ungt fólk í öllum verkefnum

EFLA er alhliða verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki í verkfræði, tækni og samfélagsgerð með meginstarfsemi á Íslandi og ráðgjöf víða um heim. Markmið þess er að veita viðskiptavinum bestu mögulegu þjónustu og lausnir, sama hvert eðli eða umfang verksins er. Guðmundur leggur áherslu á mikilvægi ungs fólks í þessum hópi: "Við viljum hafa ungt og efnilegt fólk í bland við reynslumikla sérfræðinga með langan starfsaldur - og allt þar á milli."

EFLA hefur séð um verkfræðilega hönnun og veitt ráðgjöf í mörgum af stærri verkefnum í samfélaginu. Reynslumikið fólk leiðir þar hópinn en leitast er við að hafa þá reynsluminni með. Guðmundur segir slík verkefni mikilvæg svo ungir starfsmenn fái tækifæri til að kynnast stærri umgjörð í veigameiri verkefnum: "Það er mikilvægt að tryggja hringrás þekkingarinnar. Unga fólkið í dag verður orðið lykilfólk eftir tíu til fimmtán ár."