Fréttir


Fréttir

Úrvals skrifstofuhúsnæði til leigu

Leiguhúsnæði, Skrifstofa til leigu

7.7.2020

Við hjá EFLU tökum mið af þörfum okkar fólks og vorið kallaði á breytta vinnutilhögun og aukna fjarvinnu. Það hefur því rýmkað til í nýja skrifstofuhúsnæðinu okkar að Lynghálsi 4 og leitum við að meðleigjanda. 

  • Lynghals4_til_leigu
    Nokkur rými eru laus til leigu í nýja skrifstofuhúsnæði EFLU að Lynghálsi 4.

Uppfært 11.08.2021: Því miður er ekki laust skrifstofurými í húsnæði okkar eins og stendur. Velkomið að hafa samband við okkur fyrir nánari upplýsingar. 

Um er að ræða fyrsta flokks húsnæði sem er hannað í takt við þarfir nútímans og kröfuharða notenda. Mikil áhersla var lögð á góða hljóðvist, mikil loftgæði og vandað efnisval samkvæmt kröfum BREEAM vistvænnar hönnunar. Parket er á gólfum, kerfisloft og lýsing sem er rafmagnsstýrð eftir birtustigi og fer afar vel um fólk í húsnæðinu.

Á fyrstu hæð hússins er mötuneyti, móttaka og fundarsvíta sem möguleiki er á að samnýta. Glæsilegt útsýni er yfir Reykjavík í átt að Esju.

Húsnæðið er á fimm hæðum og eru nokkur rými á 2.-5. hæð laus strax.