Fréttir


Fréttir

Úthlutun úr Samfélagssjóði

30.12.2019

EFLA hefur úthlutað úr Samfélagssjóði og hlutu átta verkefni styrk að þessu sinni. Sjóðurinn veitir úthlutun tvisvar sinnum á ári og var þetta seinni úthlutun ársins. 


  • samfélagssjóður
    Samfélagssjóður EFLU styður við jákvæð og uppbyggjandi verkefni.

Samfélagssjóður EFLU var stofnaður árið 2013 og er markmið sjóðsins  að veita styrki til uppbyggjandi og jákvæðra verkefna sem nýtast samfélaginu. Umsóknir eru metnar út frá markmiðum sjóðsins, markmiðum EFLU og áherslum nefndarinnar hverju sinni.

Verkefnin sem hlutu styrk úr sjóðnum eru eftirfarandi

  • Knattspyrnudeild UMF Hvatar
    Smábæjaleikar Hvatar

  • Specialisterne á Íslandi
    Efla og bæta almenna heilsu skjólstæðinga SÍ
  • Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
    Aðstoð við bágstadda
  • Markús Már Efraím Sigurðsson
    Áframhaldandi starfsemi Rithöfundarskólans í Gerðubergi
  • Bókasafnið á Þórshöfn
    Efla bókakost í tengslum við læsisverkefni með áherslu á lesefni fyrir nýbúa
  • Hollvinasamtök Grunnskólans á Þórshöfn
    Auka tæknimennt og stafræna færni grunnskólabarna
  • Vélmennaforritunarsamband Íslands
    Þátttaka landsliðsins í heimsmeistarakeppni í vélmennaforritun
  • Millifótakonfekt ehf/Eistnaflug
    Geðheilbrigðisráðstefna Eistnaflugs 2020

Við þökkum öllum sem sóttu um styrkveitingu í Samfélagssjóð EFLU og óskum forsvarsmönnum verkefnanna sem hlutu styrk úr sjóðnum góðs gengis. Hægt er að sækja um í sjóðinn allt árið í kring en úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári.

Nánar um Samfélagssjóð EFLU