Breikkun Suðurlandsvegar
Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg og Mosfellsbæ, áformar að tvöfalda Suðurlandsveg frá vegamótum við Bæjarháls að Hólmsá ofan Reykjavíkur. Byggð verða þrenn mislæg vegamót. Aðlaga þarf reið-, hjóla og gönguleiðir að nýjum tvöföldum vegi. Byggður verður 2 + 2 vegur og tengingum verður fækkað frá því sem nú er.
Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg með því að aðskilja akstursstefnur. Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Kynning á drögum að tillögu að matsáætlun
Drög að tillögu að matsáætlun fyrir ofangreinda framkvæmd hafa nú verið lögð fram til kynningar. Allir geta kynnt sér drögin og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdafrestur er frá 14.-28. nóvember 2019.
Athugasemdir skal merkja „Breikkun Suðurlandsvegar“ og senda með tölvupósti á netfangið ragnhildur.gunnarsdottir@efla.is eða með bréfpósti á:
EFLA Verkfræðistofa
B.t. Ragnhildar Gunnarsdóttur
Lynghálsi 4
110 Reykjavík