Efnistaka í Seljadal
Til að mæta efnisþörf fyrir malbikunarframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess hyggst Malbikunarstöðin Höfði hf. halda áfram efnisvinnslu í Seljadal í Mosfellsbæ næsta eina og hálfa tímabilið (september – nóvember 2014 og apríl – október 2015).
Um verkefnið
Malbikunarstöðin Höfði hefur gert samning við verkfræðistofuna EFLU um að hafa umsjón með mati á umhverfisáhrifum fyrir efnistökuna.
Malbikunarstöðin Höfði hf. hefur óskað eftir því að Skipulagsstofnun taki matsskýrslu vegna efnistöku í Seljadal í Mosfellsbæ til meðferðar skv. 11. gr. laga nr.106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Frummatsskýrsla lá frammi til kynningar frá 13. júlí til 26. júlí 2014 á heimasíðu EFLU verkfræðistofu og hjá Skipulagsstofnun að Laugavegi 166, 105 Reykjavík.
Umsagnir bárust frá Mosfellsbæ, Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis, Umhverfisstofnun og Minjastofnun Íslands og athugasemdir bárust frá íbúum Miðdals og íbúum við Hafravatnsveg.
Malbikunarstöðin Höfði hf. hefur unnið efni úr Seljadalsnámu um margra ára skeið. Vegna IV. ákvæðis til bráðabirgða í lögum um náttúruvernd nr. 44/1999 þarf nú að afla námunni framkvæmdaleyfis og verður því fjallað um framkvæmdina í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Framkvæmdin fellur undir a. lið. 2. tl. 2. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og er því tilkynningaskyld. Náma af þessari stærð er því ekki sjálfkrafa matsskyld, en framkvæmdaraðila er heimilt, að höfðu samráði við Skipulagsstofnun, að sleppa málsmeðferð skv. 2. viðauka laga og hefja strax undirbúning matsferils, sbr. 10. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum. Mosfellsbær hefur óskað þess að umhverfisáhrif efnistökunnar séu metin áður en framkvæmdarleyfi er gefið út og hefur Malbikunarstöðin Höfði orðið við þeirri beiðni og fengið samþykki Skipulagsstofnunar fyrir þeirri málsmeðferð.
Núverandi náma er tæpir 5 ha að flatarmáli. Gert er ráð fyrir að vinnslusvæðið sem unnið er á næsta eina og hálfa árið sé um 1 ha til viðbótar. Efnisvinnslan verður innan þess svæðis sem afmarkað er á aðalskipulagi og er áætlað efnismagn að hámarki 60 þúsund m3. Svæðið sem fjallað er um með tilliti til vinnslu og frágangs tekur til núverandi vinnslusvæðis og þess svæðis sem ætlunin er að vinna á næsta eina og hálfa árið.
Efnisvinnslan felst í því að bora og sprengja í föstu bergi, mokstri og akstri efnisins frá námu til Reykjavíkur. Vinnslunni fylgir ofanafýting á lausu efni sem notað er til uppgræðslu svæðisins.
Í matinu verður lögð áhersla á eftirfarandi þætti: Landslag og ásýnd, gróðurfar og dýralíf, áhrif á útivist, áhrif á loftgæði og hljóðvist á rekstrartíma ásamt áhrifum á fornleifar. Gerð er grein fyrir áhrifum af völdum jarðrasks vegna efnistökunnar annars vegar og áhrifa af starfseminni sjálfri hins vegar.