Eldisstöð Ísþórs - Þorlákshöfn
Ísþór, Arnarlax, Fiskeldi Austfjarða,
Ísþór hefur undanfarið unnið að undirbúningi vegna stækkunar á eldisstöð fyrirtækisins í Þorlákshöfn úr 600 t í 1.800 t ársframleiðslu. Meginmarkmið framkvæmdarinnar er að framleiða seiði laxfiska (lax eða regnbogi) til áframeldis í sjókvíum Arnarlax á Vestfjörðum og Fiskeldis Austfjarða á Austfjörðum.
Öll vatnstaka á fersku vatni og jarðsjó fer fram á lóðinni. Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Kynning frummatsskýrslu
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 8. apríl til 25. maí á bæjarskrifstofunni í Ölfus, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar og EFLU (sjá undir skjöl neðst á síðu).
Athugasemdafrestur
Kynningartími stendur frá 8. apríl til 25. maí 2020. Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir á kynningartíma. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. maí 2020 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is