Hjálmholtsnáma í Merkurhrauni
Nesey, Merkurhraun, Náma
Nesey ehf. hyggst vinna allt að 150.000 m3 af efni á allt að 25 ha landsvæði í Merkurhrauni í landi Hjálmholts. EFLA sér um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdanna.
Náman hefur verið í notkun síðan á 8. áratug síðustu aldar en nú stendur til að stækka vinnslusvæði námunnar og er nauðsynlegt að fjalla um viðbótina í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Um verkefnið
Náman er í Merkurhrauni í landi Hjálmholts við Skeiða- og Hrunamannaveg, um tvo km frá þjóðvegi 1. Efni hefur verið unnið í Hjálmholtsnámu frá því um 1980 og er núverandi stærð námunnar um 12 ha. Efni úr námunni er aðallega nýtt í húsagrunna og vegaframkvæmdir á Suðurlandsundirlendinu. Til stendur að vinna allt að 150.000 m3 á allt að 25 ha svæði í samræmi við gildandi aðalskipulag Flóahrepps.
Kynning á drögum að tillögu að matsáætlun
Drög að tillögu að matsáætlun fyrir ofangreinda framkvæmd hafa nú verið lögð fram til kynningar. Allir geta kynnt sér drögin og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdafrestur er frá 27. janúar til og með 12. febrúar 2021.
Athugasemdir skal merkja „Hjálmholtsnáma - Efnistaka“ og senda til Snævarrs Arnar í tölvupósti eða
með bréfpósti á:
EFLA verkfræðistofa
B.t. Snævarrs Arnar Georgssonar
Lyngháls 4
110 Reykjavík