Hreinsistöð fráveitu á Akureyri
EFLA verkfræðistofa hefur, fyrir hönd Norðurorku, lagt fram frummatsskýrslu vegna hreinsistöðvar fráveitu á Akureyri.
Um verkefnið
Framkvæmdin felur í sér byggingu hreinsistöðar fráveitu á landfyllingu við Sangerðisbót á Akureyri. Þar verður skólp frá Akureyri grófhreinsað og því veitt út í sjó, um 400 metra frá landi, á 40 metra dýpi, þar sem skólpið dreifist innan skilgreinds þynningarsvæðis. Eftir að framkvæmdum lýkur ætti skólp ekki að komast að ströndinni og draga ætti úr magni saurkólígerla í sjónum við Akureyri. Jafnframt verður ástand viðtakans vaktað með reglulegu millibili samkvæmt nýrri vöktunaráætlun. Grófa efnið sem síað er frá í stöðinni verður pakkað og fært til urðunar.
Drög að tillögu að matsáætlun voru kynnt almenningi um tveggja vikna skeið í apríl og maí 2016, og nú liggur frummatsskýrsla frammi. Í henni er fyrirhugaðri framkvæmd lýst og fjallað um áhrif hennar á umhverfið, með áherslu á landnotkun, viðtakann og lyktarónæði.
Frummatsskýrsla í kynningu - 10.10.2016
Frestur til að gera athugasemdir við frummatsskýrsluna er til 23. nóvember 2016.
EFLA verkfræðistofa hefur, fyrir hönd Norðurorku, lagt fram frummatsskýrslu vegna hreinsistöðvar fráveitu á Akureyri.
Frummatsskýrslan liggur frammi til kynningar frá 12. október 2016 til 23. nóvember 2016 á heimasíðum Skipulagsstofnunar, www.skipulag.is, EFLU, www.efla.is og Norðurorku, www.nordurorka.is. Allir hafa rétt til að kynna sér skýrslurnar og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. nóvember 2016 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík.
Skjöl
Frummatsskýrsla
Frummatsskýrsla að hreinsistöð fráveitu á Akureyri
Tillaga að matsáætlun
Hreinsistöð fráveitu á Akureyri