Hreinsistöð fráveitu á Selfossi
Fráveita á Selfossi, Fráveitumál á Selfossi, Hreinsistöð á Selfossi
Umhverfismat fyrir hreinsistöð fráveitu á Selfossi
Sveitarfélagið Árborg hefur undanfarið unnið að
undirbúningi vegna hreinsistöðvar fráveitu á Selfossi. Framkvæmdin
er matsskyld samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og hefur EFLU verið falið að vinna umhverfismatið.
Lögð hefur verið fram frummatsskýrslu fyrir hreinsistöð fráveitu á Selfossi til athugunar hjá Skipulagsstofnun.
Um verkefnið
Sveitarfélagið Árborg áformar að reisa hreinsistöð fyrir fráveitu við Sandvik, norðan við flugvöllinn á Selfossi. Markmið framkvæmdarinnar er að koma á hreinsun skólps frá Selfossi sem uppfyllir skilyrði laga og reglugerða, en í dag er skólp að mestu losað óhreinsað í Ölfusá. Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt tölulið 11.04 í 1. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 þar sem um er að ræða skólphreinsivirki með afkastagetu sem svarar til 50.000 persónueininga eða meira.
Lagt var mat á umhverfisáhrif þriggja valkosta með útrás í Ölfusá, þ.e. eins þreps hreinsun, tveggja þrepa hreinsun og ítarlegri en tveggja þrepa hreinsun, og eins valkostar sem felst í grófhreinsun með útrás í sjó utan við Eyrarbakkahöfn. Metin voru áhrif ofangreindra valkosta á; vatnsgæði viðtaka, lífríki viðtaka, lyktarónæði, sjónræn áhrif, útivist, gróðurfar, fuglalíf, fornleifar, landnotkun og auðlindanýtingu. Umhverfisáhrif voru metin með hliðsjón af samþykktri matsáætlun og þeim rannsóknum sem unnar hafa verið í tengslum við matið.
Aðalvalkostur sveitarfélagsins Árborg felst í byggingu tveggja þrepa hreinsistöðvar við Sandvik með útrás í Ölfusá. Valkosturinn var valinn með hliðsjón af niðurstöðu umhverfismats og samanburði á stofn- og rekstrarkostnaði allra valkosta.
Kynning frummatsskýrslu
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 21. janúar - 4. mars 2020 á eftirtöldum stöðum:
- Bæjarskrifstofu Árborgar
- Bókasafni Árborgar
- Þjóðarbókhlöðunni
- Skipulagsstofnun
- Vefsíðu Skipulagsstofnunar
- Vefsíðu EFLU
Opið hús
Sveitarfélagið Árborg mun halda opið hús og kynna frummatsskýrsluna þann 29. janúar milli kl. 16:00 til 19:00 í Tryggvaskála, Austurvegi 2 á Selfossi. Allir velkomnir.
Athugasemdafrestur
Kynningartími stendur yfir í 6 vikur eða frá 21. janúar til 4. mars 2020. Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir á kynningartíma. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 4. mars 2020 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is