Stjörnuegg – Endurnýjun og aukning framleiðslugetu
Vallá á Kjalarnesi, Stjörnuegg, Eggjabú, Mat á umhverfisáhrifum Stjörnueggja
Endurnýjun búnaðar og aukin framleiðslugeta að eggjabúinu Vallá á Kjalarnesi
Stjörnuegg hf. hyggjast endurnýja varpbúnað og bæta aðstöðu í húsum eggjabús síns að Valla á Kjalarnesi en eggjabú hefur verið starfrækt á jörðinni síðan 1970.
Við þessar breytingar á varpkerfum eykst aðgengilegt rými fyrir fugla í húsunum, þannig að eftir breytingu mun eldisrými í húsunum vera fyrir að hámarki 95.000 fugla á mismunandi vaxtarstigum
Um verkefnið
Framkvæmdin er matsskyld skv. tölulið 1.09 i. (Þauleldi alifugla og svína með að minnsta kosti 85.000 stæði fyrir kjúklinga eða 60.000 fyrir hænur) í 1. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum (1). Framkvæmdin fellur undir flokk A, þ.e. framkvæmdir sem ávallt eru háðar mat á umhverfisáhrifum. Um er að ræða breytingar innanhús á búi sem hefur verið í fullum rekstri síðan um 1970.
Tilgangur framkvæmdarinnar endurnýjun á varpbúnaði húsanna og bætt aðstaða innndyra. Við það eykst einnig framleiðslugeta búsins, sem mætir aukinni eftirspurn eftir eggjum. Búið uppfyllir kröfur um aðbúnað alifugla, þ.m.t. varðandi aðgengilegt gólfrými.
Athugasemdafrestur
Allir hafa rétt til að kynna sér drögin að tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Að auglýsingatíma loknum verða drögin, ásamt þeim athugasemdum sem berast, send Skipulagsstofnunar til umfjöllunar.
Hægt er að koma ábendingum eða athugasemdum við drög að tillögu að matsáætlun til Friðriks K. Gunnarssonar hjá EFLU með tölvupósti.
Frestur til athugasemda er til 14. desember 2017