Suðurlandsvegur Hveragerði - Selfoss
Vegagerðin hyggst tvöfalda Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss.
Um verkefnið
Markmið þessarar framkvæmdar er að byggja veg með tvær aðskildar akreinar í hvora átt og auka þannig umferðaröryggi, lækka slysatíðni og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg. Gerð verða mislæg vegamót á allt að 4 stöðum og tengingum þannig fækkað og þær gerðar öruggari.
Núverandi vegur mun nýtast sem hluti af nýjum tvöföldum vegi og að hluta sem hliðarvegur. Suðurlandsvegur mun víkja frá núverandi legu norðan Selfoss og verða í nýrri legu yfir Ölfusá. Lagðir verða fram tveir valkostir fyrir þverun árinnar.
Vegurinn liggur um sveitarfélögin Hveragerði, Ölfus, Árborg og Flóahrepp.
Mat á umhverfisáhrifum
Tvöföldun Suðurlandsvegar og gerð mislægra vegamóta er matsskyld skv. tl. 10. ii. í 1. viðauka laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum.
Í frummatsskýrslu er fjallað um þá þætti umhverfisins sem hugsanlega geta orðið fyrir umtalsverðum umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar, bæði á framkvæmdatíma og rekstrartíma. Lögð áhersla á náttúrufar, fornleifar, hljóðvist, landslag og sjónræna þætti, útivist, samgöngur og umhverfisáhrif á framkvæmdatíma.