Suðurlandsvegur Vesturlandsvegur - Hólmsá
Vegagerðin áformar að tvöfalda Suðurlandsveg frá vegamótum Vesturlandsvegar að Hólmsá ofan Reykjavíkur.
Um verkefnið
Aðlaga þarf tengingar mislægra vegamóta við Bæjarháls og tengingar við
hringtorg við Breiðholtsbraut. Tvöfalda þarf hringtorg við Norðlingavað
og byggja veggöng og aðlaga tengingu við Heiðmörk. Byggð verða mislæg
vegamót við Hafravatnsveg og aðlaga þarf lýsingu, reið-, hjóla og
gönguleiðir að nýjum tvöföldum vegi. Byggður verður 2 + 2 vegur og
tengingum verður fækkað frá því sem nú er. Markmið framkvæmdarinnar er
að auka umferðaröryggi og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg með
því að aðskilja akstursstefnur. Vegurinn verður byggður í áföngum.
Vesturhluti
fyrirhugaðs framkvæmdasvæðis frá Vesturlandsvegi að Rauðavatni hefur
þegar verið undirbúinn og verða akreinar byggðar austan og norðan
núverandi vegar. Við vegamót Breiðholtsbrautar er landrými takmarkað og
einnig er þrengt að vegsvæði við Rauðavatnsskóg. Á þeim vegkafla verður
byggður vegur með þröngu vegsniði. Suðurlandsvegur liggur síðan á bökkum
Bugðu (Hólmsár) austan Norðlingaholts á svæði sem að stórum hluta hefur
verið raskað með ýmsum framkvæmdum. Lögð verður áhersla á að raska ekki
ánni og árbakkanum og því verður vegurinn tvöfaldaður til suðurs eftir
að vegurinn þverar Bugðu (Hólmsá) og aftur verður yfirfærsla og breikkun
til norðurs þegar farið verður yfir ána í annað sinn.
Mat á umhverfisáhrifum
Framkvæmdin er matsskyld skv. tl. 10. ii. í 1. viðauka laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum.
Í
frummatsskýrslu er fjallað um þá þætti umhverfisins sem hugsanlega geta
orðið fyrir umtalsverðum umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar, bæði á
framkvæmdatíma og rekstrartíma. Lögð áhersla á náttúrufar, fornleifar,
hljóðvist, landslag og sjónræna þætti, útivist, samgöngur og
umhverfisáhrif á framkvæmdatíma.
Skjöl
Matsáætlun
Ákvörðun SkipulagsstofnunarTillaga að matsáætlun