Sundabraut 1. áfangi
Hafin er vinna að nýju við undirbúning mats á umhverfisáhrifum fyrir 1. áfanga Sundabrautar í Reykjavík, vegtengingu yfir Elliðavog. Áður fór fram mat á umhverfisáhrifum árið 2004.
Um verkefnið
Lagðir voru fram fram 3 valkostir. Til mats á umhverfisáhrifum nú er lagður fram einn nýr valkostur, Sundagöng frá Laugarnesi upp í Gufunes sem og breytt lega á áður framlögðum valkosti; Eyjalausn á leið III. Veglína Eyjalausnar sem nú er til skoðunar liggur utan við Gufuneshöfðann á landfyllingu í stað þess að fara í gegnum höfðann.Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á höfuðborgarsvæðinu með því að létta á umferðarþunga á öðrum vegum, auka öryggi í samgöngum með styttingu vegalengda og aukinni umferðarrýmd, auka hagræði í samgöngum og atvinnustarfsemi og opna fyrir þróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu til norðurs og norðausturs.
Í drögum að matsáætlun er fyrirhugaðri framkvæmd, framkvæmdarsvæði og áhrifasvæði lýst. Umfangi umhverfismatsins er lýst og fjallað um hvaða umhverfisþættir verða skoðaðir og hverjir ekki teknir fyrir.
Skjöl
Matsáætlun
Ákvörðun SkipulagsstofnunarTillaga að matsáætlun
Kort - 1.viðauki
Minnisbl.sérfr. - 2.viðauki
Athugasemdir. - 3.viðauki
Drög að tillögu að matsáætlun
Drög að tillögu að matsáætlun
Kort - 1.viðauki
Minnisbl. sérfr. - 2.viðauki