Sundahöfn - umhverfismat
EFLA sér um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmda Faxaflóahafna við dýpkun Viðeyjarsunds og landfyllinga.
Um verkefnið
Fyrirhugað er að lengja Skarfabakka til suðurs, færa Kleppsbakka utar og lengja Sundabakka og Vogabakka svo að þeir nái saman. Við Klettagarða verður núverandi landfylling stækkuð utan við skólphreinsistöð Veitna. Í heildina er áætlað að taka 3.150.000 m3 af efni af hafsbotni við dýpkun Viðeyjarsunds. Heildarefnisþörf allra landfyllinga er metin um 2 milljónir m3.
Um er að ræða efnistöku og haugsetningu sem nemur meira magni en 150.000 m3 og er á svæði sem er stærra en 5 ha. Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum fellur framkvæmdin því undir flokk A, þ.e. framkvæmd sem ávallt er háð umhverfismati, með vísan til töluliða 2.01 og 13.01 í 1. viðauka laganna.
Kynning á drögum að tillögu að matsáætlun
Drög að tillögu að matsáætlun eru nú birt til kynningar um tveggja vikna skeið, frá 23. október til og með 6. nóvember 2020. Á þessu tímabili gefst almenningi tækifæri til að koma með athugasemdir við tillöguna.
Athugasemdafrestur er frá 23. október til og með 6. nóvember 2020.
Athugasemdirnar skal merkja „Sundahöfn – umhverfismat“ og senda tölvupóst á Ragnhildi Gunnarsdóttur eða með bréfpósti á:
EFLA verkfræðistofa
Ragnhildur Gunnarsdóttir
Lynghálsi 4
110 Reykjavík