Vikurnám á Mýrdalssandi
Mýrdalshreppur, Hafursey, Háalda, Efnistaka
Fyrirhugað er að vinna allt að 146 milljón m3 af efni á allt að 15,5 km2 landsvæði á Mýrdalssandi. Náman hefur verið á aðalskipulagi Mýrdalshrepps í um tvo áratugi en fyrst núna á að hefja efnistöku og er nauðsynlegt að fjalla um efnistökuna í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Um verkefnið
Þýska fyrirtækið STEAG Power Minerals hyggur á efnistöku á vikri á Mýrdalssandi austan og suðaustan við Hafursey, svokallaðri Háöldu. Vikurinn verður fluttur út til Evrópu, og mögulega N-Ameríku, þar sem hann verður notaður sem íblöndunarefni í framleiðslu á sementi. Vikrinum verður keyrt til Þorlákshafnar þar sem hann er settur um borð í skip sem siglir með hann til sementsframleiðenda, aðallega í Evrópu. Vikrinum er ætlað að koma í stað kolaösku (e. coal fly ash) úr kolaverum sem notuð hefur verið sem íblöndunarefni í sement um áraraðir.
Hugmyndir um vikurnám á þessu svæði eru síður en svo nýjar af nálinni og er efnistökusvæðið í heild sinni búið að vera á gildandi aðalskipulagi Mýrdalshrepp í tæp 20 ár (náma E17). Nýting á vikri til útflutnings er jafnframt í stefnumótun Staðardagskrár 21 fyrir Mýrdalshrepp frá árinu 2009. Árið 2002 var unnið mat á umhverfisáhrifum fyrir vikurnámið og lauk því ferli með því að Skipulagsstofnun heimilaði efnistökuna með úrskurði sínum þann 26. ágúst 2002. Á þeim tæplega 20 árum sem liðin eru er umhverfismatið fallið úr gildi auk þess sem kröfur til umhverfismata hafa breyst nokkuð, þess vegna er ráðist í gerð nýs umhverfismats.
Kynning á drögum að tillögu að matsáætlun
Drög að tillögu að matsáætlun fyrir ofangreinda framkvæmd hafa nú verið lögð fram til kynningar. Allir geta kynnt sér drögin og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdafrestur er frá 21. maí til og með 4. júní 2021.
Athugasemdir skal merkja „Mýrdalssandur - Efnistaka“ og senda í tölvupósti til
Snævarrs Arnar eða
með bréfpósti á:
EFLA verkfræðistofa
B.t. Snævarrs Arnar Georgssonar
Glerárgata 32
600 Akureyri