Tyrkland
Tengiliður
Rúnar Magnússon Orkuverkfræðingur M.Sc. Sími: +354 412 6227 / +354 665 6227 Netfang: runar.magnusson@efla.is Reykjavík
EFLA hefur sinnt verkfræðiráðgjöf í jarðhitaverkefnum í Tyrklandi síðan 2010 og tekið þátt í verkefnum með þarlendum þróunaraðilum.
Jarðhitaverkefnin hafa meðal annars snúið að forathugun og gerð hugmyndalíkans fyrir jarðhitakerfi ásamt straumfræðilíkani fyrir mögulegri uppbyggingu á orkuveri. Einnig vinnur EFLA með fjárfestum sem óska eftir ráðgjöf og mati á jarðhitasvæði áður en endanleg ákvörðun er tekin um kaup og þróun á jarðhitasvæðum.
Þess má geta að á síðastliðnum 10 árum hafa Tyrkir aukið verulega nýtingu á jarðhita til raforkuframleiðslu og hafa náð fram úr Íslendingum í framleiðslugetu fyrir árið 2017, sem er komin yfir 1000MWe.
Öflugir samstarfsaðilar
EFLA er í samstarfi við RTE og Zorlu Enerji, sem hefur byggt upp yfir 200MWe í jarðhitavirkjunum, um þróun á jarðhitasvæði við fjallið Nemrut í austanverðu Tyrklandi.
Við mat á jarðhitasvæðum hefur EFLA verið í samstarfi m.a. við Isor, Geologica, Quantec og fleiri sérhæfð félög í jarðhita víða um heim auk þess að starfa með þekktum vísindamönnum á sviði jarðhita um ráðgjöf.