Vestfirðir
Tengiliður
Samúel Orri Stefánsson Byggingafræðingur B.Sc. og Húsasmíðameistari - Svæðisstjóri Sími: +354 412 6112 / +354 696 2174 Netfang: samuel.orri.stefansson@efla.is Vestfirðir
EFLA leggur mikla áherslu á að veita alhliða þjónustu um allt land með því að halda úti öflugum starfsstöðvum í öllum landsfjórðungum. Á Vestfjörðum starfa fimm starfsmenn og vinna þeir í nánu samstarfi við fagteymi EFLU um allt land. Veitt er ráðgjöf á sviði verkfræði og tæknifræði á svæðinu, þ.m.t. ráðgjöf varðandi umhverfismál, skipulagsmál og orkumál.
Sérstaða starfsstöðvarinnar á Vestfjörðum er verkfræðihönnun, gerð aðaluppdrátta vegna mannvirkjagerðar, kostnaðaráætlanir, ástandsskoðanir, GPS mælingar og útsetningar fyrir lóðir, vegi, hafnir og mannvirki ásamt gerð eignaskiptasamninga og útboðsgagna.
Fréttir
EFLA kaupir Tækniþjónustu Vestfjarða
EFLA og Tækniþjónusta Vestfjarða ehf. hafa undirritað samning um að EFLA kaupi allt hlutfé Tækniþjónustunnar. Sameiningin mun styrkja áherslu EFLU á nærþjónustu á landsbyggðinni.
Lesa meiraDýrafjarðargöng opnuð
Dýrafjarðargöng voru opnuð sunnudaginn 25. október með óvenjulegu sniði í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu. EFLA í samstarfi við Geotek, sá um verkumsjón og eftirlit með framkvæmdinni, ásamt Tækniþjónustu Vestfjarða og Pólnum frá Ísafirði.
Lesa meira