Sýnataka og greining
Rannsóknarstofa, Greina sýni, Mygluvöxtur, Mygla, Raki, Innivist
Tengiliðir
Svavar Örn Guðmundsson Líffræðingur B.Sc. Sími: +354 412 6411 / +354 665 6411 Netfang: svavar.gudmundsson@efla.is Reykjavík
Hægt er að koma með sýni til rannsóknar eða fá sérfræðing frá EFLU til að koma á staðinn og taka sýni. Í kjölfarið greinir líffræðingur sýnin með skoðun í víðsjá og smásjá.
Tilgangurinn með greiningu á sýnum er að vera betur í stakk búin til að veita ráðgjöf til að draga úr frekari rakavandamálum og hversu langt þurfiað ganga í aðgerðum og hreinsun.
Til þess að geta dregið ályktanir af niðurstöðum þarf í flestum tilfellum að liggja fyrir skoðun og rannsókn á byggingu eða byggingarhlutum, uppbyggingu og loftlekaleiðum auk rakamælinga.
Sýnataka og framkvæmd
Hægt er að óska eftir sýnatöku á höfuðborgarsvæðinu (pnr: 101-113, 200-225, 270) eða koma með sýni til greiningar í móttöku EFLU að Lynghálsi 4, 110 Reykjavík milli kl. 8 og 16, mánudaga til föstudaga.
Nauðsynlegt er að fylgja leiðbeiningum um sýnatöku og meðhöndlun sýnis sem er að finna neðar á síðunni.
Mygla tengist rakavandamálum
Ef mygluvöxtur finnst í byggingarefnum gefur það tilefni til aðgerða þar sem hann finnst eingöngu þar sem rakavandamál eru til staðar.
Algengar spurningar og svör
Hvernig tek ég sýni úr byggingarefni?
Það er nauðsynlegt að taka heila efnisbúta af byggingarefni þar sem rakavandamál er til staðar og grunur er um myglu. Ef um er að ræða plötu, t.d. gips eða krossvið, skaltu taka 5x5 cm2 bút og náðu bæði framhlið og bakhlið efnisins. En ef um er að ræða stoðir eða timbur í þaki er gott að taka flís úr efninu með sporjárni að lágmarki 1 cm inn í efnið.
Get ég tekið sýni og sent til rannsóknar?
Já, það getur þú gert, en hafa ber í huga að það er vandasamt að velja sýnatökustað til þess að meta hvort vandamál tengt rakaskemmdum og myglu sé til staðar. Sem dæmi þá má í mörgum tilfellum taka stroksýni við rúður að vetri til og í þeim sýnum greinist mygla. Sú mygla sem þar greinist getur valdið einkennum og ætti í öllum tilfellum að fjarlægja og hreinsa.
Orsök vegna þess má oftast skýra með fáum loftskiptum, háum loftraka eða rakaþéttingu á köldum fleti. Slíkar aðstæður endurspegla ekki endilega vandamál vegna hönnunar eða framkvæmda heldur til notkunar húsnæðis.
Hvernig skila ég sýnum til greiningar?
Þú þarft að ganga frá sýnunum í plastpoka með riflás og senda okkur beiðni um sýnagreiningu og merkja pokann skilmerkilega með eftirfarandi upplýsingum:
- Nafn, kennitala, heimilisfang og póstnúmer
- Dagsetning sýnatöku
- Sýnanúmer
- Sýnatökustaður (heimilisfang og póstnúmer)
- Hvar sýnið er tekið í húsinu (t.d. svefnherbergi, skrifstofa)
- Byggingarefni sýnis (t.d. veggur, golf, þakbiti, krossviður, gips, parket, undirlag, límtré, fura).
- Lýsing á aðstæðum