Burðarvirki
Burðarþol, Burðarþolshönnun, Hönnun burðarþols, Burðarkerfi, Klæðningar, Stál, Steining húsa, Útveggir
EFLA veitir víðtæka ráðgjöf á öllum sviðum burðarþolshönnunar í bæði nýjum og eldri mannvirkjum.
Tengiliðir
Elis Benedikt Eiríksson Byggingarverkfræðingur M.Sc. Sími: +354 412 6523 / +354 665 6523 Netfang: elis.eiriksson@efla.is Egilsstaðir
Árni Gunnar Kristjánsson Byggingartæknifræði B.Sc. Sími: +354 412 6706 / +354 665 6706 Netfang: arni.gunnar.kristjansson@efla.is Akureyri
Bjarni Jón Pálsson Byggingarverkfræðingur M.Sc. Sími: +354 412 6050 / +354 665 6050 Netfang: bjarni.jon.palsson@efla.is Reykjavík
Víðtæk reynsla okkar í byggingariðnaði hefur fært EFLU alhliða þekkingu á greiningu og hönnun burðarvirkja, allt frá íbúðarhúsnæði til stórra atvinnu- og iðnaðarmannvirkja.
Yfirgripsmikil reynsla af að nota margvíslegar byggingaraðferðir ásamt vilja til að nota ný byggingarefni, gerir EFLU kleift að mæta þeim kröfum sem hvert verkefni setur.
Árangurinn verður hagkvæm hönnun og lausnir sem sameina nýsköpun, verkfræðilega og efnahagslega hagkvæmni.
Samvinna, þróun og tækni
Með því að sameina sérfræðiþekkingu starfsmanna EFLU og nýjustu þróun í hönnunaraðferðum og hugbúnaðartækni, getum við sérsniðið lausnir sem uppfylla þarfir viðskiptavinarins.
Á meðal þjónustusviða eru
- Hönnun nýrra burðarvirkja úr steypu, stáli eða timbri
- Hönnun úr gleri, áli, koltrefjum, ryðfríu stáli o.fl.
- Hönnun einstakra byggingarhluta svo sem forsteyptra eininga, glerhandriða og útveggjaklæðninga
- Vatnsþétt steypa, sjónsteypa, forspennt steinsteypa, eftirspennt steinsteypa, forsteyptar einingar
- Breytingar og endurbætur á eldri mannvirkjum
- Greining á mannvirkjum með tilliti til jarðskjálfta
- Efnisval m.t.t. eiginleika og endingar
- Verklýsingar, kostnaðaráætlanir og útboðsgögn
- Vistvæn hönnun t.d. með tilliti til Breeam vottunar
- Líftímagreiningar (LCC)
- Vistferilsgreiningar (LCA)