Framkvæmdaeftirlit
Eftirlit með framkvæmdum, Framkvæmdir, Stjórnun framkvæmda, Framkvæmd
Allt frá stofnun EFLU hefur fyrirtækið verið þekkt fyrir að veita ferska, hagkvæma og árangursmiðaða þjónustu og lausnir við stjórnun framkvæmda og eftirlit með þeim.
Starfsmenn EFLU búa yfir umfangsmikilli þekkingu og reynslu af framkvæmdastjórnun og eftirliti með framkvæmdum.Tengiliður
Júlíus KarlssonRafmagnsverkfræðingur M.Sc. Sími: +354 412 6144 / +354 665 6144Netfang: julius.karlsson@efla.is
Framkvæmdaeftirlit er hagsmunagæsla fyrir verkkaupa, sem felst í að hafa umsjón með því að verk sé unnið samkvæmt verklýsingu. Einnig er þess gætt að tímaáætlanir standist og fylgst er með að kostnaður við verkefnið fari ekki úr böndum.
EFLA hefur unnið að eftirliti með framkvæmdum í sumum af stærstu framkvæmdum á Íslandi þar á meðal við byggingu Hörpu tónlistarhúss og PCC á Bakka við Húsavík.
Gott eftirlit lágmarkar mistök
Markvisst framkvæmdaeftirlit sem byggir á áratuga reynslu og mikilli þekkingu tryggir að framkvæmdir uppfylli sem best væntingar verkkaupa.
Á meðal þjónustusviða eru
- Skipulag eftirlits
- Samskipti
- Skjalastjórnun
- Verkgæði
- Efnissamþykktir
- Breytingastjórnun
- Verkframvinda
- Kostnaðareftirlit
- ÖHU (öryggi, heilbrigði og umhverfi) eftirlit
- Fundir