Rakaskemmdir og mygla - Heimili

Raki, Mygla, Skoða heimili, Rakaskemmdir, Myglusveppur

EFLA býður upp á skoðun á heimilum, eða hjá fyrirtækjum, þar sem grunur leikur á að rakaskemmdir eða mygla sé til staðar.


EFLA er leiðandi á markaði og veitir fjölbreytta þjónustu á sviði rakaskemmda. Sérstaðan er meðal annars fólgin í yfirgripsmikilli reynslu og víðtækri þekkingu en ráðgjafar fyrirtækisins hafa skoðað yfir 7.000 byggingar á Íslandi í tengslum við rakaskemmdir.

Tengiliður

Í raun og veru má finna einhvern raka og myglu í öllum húsum. Við skoðun á heimilum þar sem rakaskemmdir kunna að leynast einbeitir starfsfólk EFLU sér að því að skoða orsök og umfang rakavandamálsins.

Auk þess er boðið upp á skoðun á heimilum fyrir þá sem hafa í hyggju að fara í framkvæmdir og sinna viðhaldi. Markmið slíkrar skoðunar er að benda á þau viðhaldstengdu atriði sem huga þarf sérstaklega að og meta svæði þar sem rakavandamál eru til staðar eða eru líkleg til að koma upp.



Heimilisskoðun

Ráðgjafi EFLU kemur á staðinn og skimar fyrir raka á áhættusvæðum til dæmis votrýmum, undir gluggum eða við hurðir. Í framhaldinu er tekin ákvörðun um hvort þörf sé á sýnatöku eða frekari rannsóknum. Heimilisskoðun gefur húseiganda upplýsingar um hvort rakavandamál eða möguleg mygla sé til staðar á heimilinu, hugmynd um orsök og aðgerðaráætlun í framhaldi ef einhverju er ábótavant.

Innifalið í heimilisskoðun er allt að klukkutíma heimsókn, rakaskimun með rakamæli og notkun á hitamyndavél ef það á við. Sýnataka úr byggingarefnum ef hún felur í sér lítið rask (þ.e. með auðveldu aðgengi). 

Greiða þarf sérstaklega fyrir greiningu á sýni úr byggingarefnum skv. gjaldskrá EFLU. Ráðlagt er um næstu skref, ef þörf reynist á, og bent á fyrirbyggjandi aðgerðir í samtali við húseiganda.

Innifalið í heimilisskoðun er rafrænt skjal með ráðgjöf um hreinsun og aðgerðir á rakasvæðum. Akstur innan höfuðborgarsvæðisins er innifalinn í verði, en gerð verða föst verðtilboð vegna aksturs utan höfuðborgarsvæðisins.

Gjaldskrá - Heimilisskoðun Verð án vsk Verð m.vsk
Heimilisskoðun (allt að 1 klst.) 120.480 kr. 150.000 kr.
Byggingarsýni
 24.100 kr.  30.000 kr.

Bóka heimilisskoðun


DNA sýnataka á heimili

Með DNA sýnagreiningu er sýni tekið af ryki í íbúð til þess að kanna hvort að þar finnist erfðaefni rakasækinna örvera eins og myglu og baktería í meira magni en eðlilegt má teljast. 

Sýnataka er framkvæmd í heimilisskoðun ef ekkert annað kemur í ljós við rakaskimun. Kostnaður við DNA sýnatöku felur í sér greiningu á danskri rannsóknarstofu ásamt sendingarkostnaði, umsýslu og ráðgjöf varðandi næstu skref. 

Gjaldskrá - DNA sýnataka Verð án vsk Verð m.vsk
Sýnataka og greining 44.354 kr 55.000 kr

Mikilvægt að hafa í huga

Heimilisskoðun er skoðun og rakamæling á helstu svæðum þar sem er þekkt áhætta og aðgengilegt er að skoða. Þessi skoðun er ekki heildarúttekt sem felur í sér að opna byggingarhluta og skoða undir gólfefni og innan í veggi nema að það sé aðgengilegt og hægt innan tímaramma heimsóknar. 

Rakaskemmdir og mygla geta leynst víða og þá sérstaklega í eldra húsnæði. Til þess að ganga úr skugga um alla leynda galla þarf umfangsmikla skoðun og opnun á byggingarhlutum sem er ekki innifalið í heimilisskoðun.

Mikilvægasta skrefið í raka- og mygluskoðun er að aðili með sértæka þekkingu og reynslu noti rakamæli og hitamyndavél ef þess þarf og skoði sjónrænt. Reikna má með einhverjum raka og myglu í öllum húsum, t.d. í fúgu í sturturými, en það sem skiptir máli er að meta umfang og orsök rakaskemdanna. Þannig gæti þurft að skoða hvort að raki sé kominn á bak við flísar, undir gólfefni eða í þakrými. Raki í byggingarefnum sem nægir til örveruvaxtar er ekki sýnilegur sjónrænt nema í örfáum undantekningartilfellum.

Þar sem rakavandamál og rakaskemmdir hafa komið upp er mikilvægt að bregðast við eftir ákveðnum verkferlum. Hreinsun á slíkum svæðum eru vandasamar aðgerðir og að mörgu að huga.

Tengd þjónusta


Var efnið hjálplegt? Nei