Skjákerfi
Framleiðsluferli, Tækjabúnaður, Stýrikerfi, Skjástýrikerfi, Scada, Framleiðslukerfi, Stjórnkerfi, Skjámyndakerfi
Megin tilgangur skjákerfa er að veita rekstraraðilum yfirsýn yfir framleiðsluferli og stöðu ásamt stjórnun tækjabúnaðar.
Sérfræðingar EFLU hafa víðtæka reynslu í hönnun og rekstri skjákerfa fyrir framleiðslu- og mælikerfi.
Tengiliðir
Skúli Björn Jónsson Rafmagnstæknifræðingur B.Sc. - Sviðsstjóri Sími: +354 412 6193 / +354 665 6193 Netfang: skuli.jonsson@efla.is Reykjavík
Logi Friðriksson Rafmagnstæknifræði B.Sc. Sími: +354 412 6157 / +354 665 6157 Netfang: logi.fridriksson@efla.is Reykjavík
Skjákerfi er eins konar gluggi inn í stýrivélar sem gerir upplýsingar aðgengilegar fyrir rekstraraðila framleiðslukerfa. Skjákerfi veita möguleika á að halda utan um síritun mæligilda og meðhöndlun aðvarana.
Þannig veita skjákerfi rekstraraðilum framleiðslu-/stjórnkerfa öfluga yfirsýn yfir rekstur kerfanna.
Skjákerfi geta dregið úr mannskapsþörf við vöktun og stjórnun búnaðar, auk þess sem oft á tíðum er hægt að færa hluta vinnunar í öruggara umhverfi. Miklir möguleikar eru í greiningu á áreiðanleika tækjabúnaðar út frá meðhöndlun aðvarana og mæligilda framleiðslunnar m.t.t. rekstrar- og öryggisþátta.
Yfirsýn og aðgengilegar upplýsingar
Með skjákerfi er aðgengi að upplýsingum úr framleiðslukerfum tryggt og auðveldara að ná upplýsingum úr kerfinu sem aðstoða við alla greiningu og mælingu á framleiðsluferlum.
Á meðal þjónustusviða eru
- Þarfagreining á skjákerfislausnum
- Hönnun á kerfisuppbyggingu
- Val á búnaði
- Tenging skjákerfa við gagnagrunn verksmiðju
- Forritun skjákerfa
- Innleiðing ferla og prófanir
- Þjónusta við ýmsar gerðir skjákerfa
- Gerð útboðsgagna
- Kennsla og þjálfun rekstrar- og þjónustuaðila
Hvenær á skjákerfi rétt á sér?
Í öllum tilfellum þar sem rekstraraðilar þurfa að öðlast bætta sýn á framleiðslu-/stjórnkerfi sín ásamt tilfellum þar sem skráningar mæligilda er krafist.