Eru innivist, sjálfbærni og umhverfisvottanir þér mikilvægar?

EFLA leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi sem hefur áhuga á að sérhæfa sig í innivist. Tækifæri til þess að þróast með ört stækkandi teymi í verkefnum sem tengjast umhverfisvottun bygginga, LCA greiningum, byggingareðlisfræði og rakaöryggisverkefnum. Um er að ræða starf á byggingasviði í fagteymi byggingartækni með sérstaka áherslur á innivist og rakaskemmdir.

Hvernig getum við aukið líftíma og endingu bygginga, endurnýtt byggingarefni í meira mæli en það er gert í dag, og þar af leiðandi styrkt hringrásarhagkerfið í byggingariðnaði? Hvernig þurfum við að bregðast við breyttu álagi á byggingar vegna loftslagsbreytinga, hertari krafna um orkusparnað, aukinni kröfu um loftskipti og um leið tryggja að byggingar séu heilnæmar og vistvænar. Hvort sem á við um nýbyggingar eða við endurbætur og viðhaldsframkvæmdir.

Hjá EFLU er lögð áhersla á starfsþróun starfsfólks innan síns sviðs. Þess vegna er um að ræða frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling sem er tilbúinn að taka áskorunum og sérhæfa sig í starfi.

Helstu verkefni:

  • Rakaskimun, sjónskoðun og sýnataka
  • Sýnataka úr byggingarefnum vegna rakaskemmda eða endurbóta
  • Loftgæða rannsóknir, sýnataka og síritun loftgæða
  • Skýrslugerð og tillögur að endurbótum
  • Ástandsskoðanir fasteigna, gallagreining, lekaprófun, loftþéttleikamælingar
  • Umsjón / eftirlit verklegra framkvæmda/ ráðgjöf á verktíma

Önnur verkefni:

  • Prófanir og skýrslugerð fyrir umhverfisvottanir bygginga - VOC mælingar, loftþéttleikapróf og hitamyndamælingar
  • Rakaöryggisáætlanir og eftirfylgni við nýframkvæmdir eða endurbætur
  • Byggingareðlisfræði og rýni

Hæfniviðmið:

  • Háskólamenntun á sviði verkfræði, tæknifræði, arkitektúr, líffræði, byggingarfræði eða önnur menntun við hæfi
  • Iðnmenntun og/eða reynsla af byggingarframkvæmdum er kostur en ekki skilyrði
  • Mikill áhugi á sérhæfingu innan starfssviðs
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samvinnu
  • Metnaður til starfsþróunar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, sérfræðingur á mannauðssviði.

Umsóknarfrestur er til og með 4. júní.

Sækja um starf


Vinnustaðurinn EFLA

EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni.

EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Um fjórðungur starfsfólks EFLU starfar á landsbyggðinni.

Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.

Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri.


Var efnið hjálplegt? Nei