Lagna- og loftræstihönnun
EFLA leitar að metnaðarfullum og áhugasömum starfskrafti, með sérþekkingu í lagna og loftræsihönnun. Um er að ræða starf á byggingasviði í fagteymi lagna- og loftræsikerfa.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hönnun frárennslis- , neysluvatns-, kæli- og hitakerfa
- Hönnun á vatnsúðakerfi
- Hönnun loftræsilagna
- Gerð útboðsgagna
- Gerð orkuútreikninga
- Gerð kostnaðaráætlana
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í vél- og orkutæknifræði, vélaverkfræði, orkuverkfræði eða sambærileg menntun
- Reynsla af lagna og/eða loftræsihönnun er kostur
- Reynsla í notkun AutoCad og Revit er kostur
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samvinnu
- Metnaður til starfsþróunar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og rit.
- Kunnátta í Norðurlandamáli er kostur.
EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni. EFLA er með starfsstöðvar um allt land, en höfuðstöðvarnar eru að Lynghálsi 4 í Reykjavík. Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Þannig vinnum við að fjölbreyttum verkefnum í teymum. EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki með skýra jafnréttisstefnu og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri. EFLA leitast eftir því að fá til liðs við sig kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði. Við vinnum fjölbreytt verkefni í teymum þvert á svið og svæði.
Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda. Gildi okkar eru hugrekki, samvinna og traust.
Nánari upplýsingar veitir Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum.
Við hvetjum öll kyn til þess að sækja um.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Vinnustaðurinn EFLA
EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem fjórðungur starfsfólks starfar. Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.
- Nánari upplýsingar um vinnustaðinn
- Nánari upplýsingar um stefnur EFLU
- Persónuverndaryfirlýsing til umsækjenda
- Um svið og starfsstöðvar EFLU