Viltu stuðla að góðum vegum?

EFLA leitar að öflugum starfsmanni í teymi Vega og mælinga. Í teyminu starfa sérfræðingar sem sinna fjölbreyttum verkefnum á Samfélagssviði EFLU. Verkefni sem felast í starfinu snúa að hönnunar- og verkefnastjórnun, vega-, gatna- og stígahönnun, viðhaldi vega, mælingum og eftirliti með vega- og gatnaframkvæmdum.

Helstu verkefni 

  • Eftirlit með vega- og gatnaframkvæmdum
  • Ástandsmat gatna og vega
  • Verkefnastjórnun
  • Gerð útboðsgagna
  • Tilboðsgerð

Hæfniskröfur

  • Menntun á sviði verk-, tækni- eða byggingarfræði eða önnur menntun sem nýst gæti í starfi
  • Reynsla af eftirliti er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og samskiptahæfni
  • Gott vald á íslensku og ensku, þekking á norðurlandamáli er kostur

Öll starfsemi EFLU byggir á teymisvinnu þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Við leitum því að kraftmiklu, jákvæðu og metnaðarfullu fólki sem hefur áhuga á fjölbreyttri verkefnaflóru þvert á svið og svæði. Starfsumhverfi EFLU er einstakt og okkur þykir gaman í vinnunni.

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar veitir Yrsa G. Þorvaldsdóttir, mannauðssérfræðingur.

Farið er yfir umsóknir jafnóðum og þær berast. Starfið verður í auglýsingu þar til réttur einstaklingur finnst. 

Sækja um starf


Vinnustaðurinn EFLA

EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem fjórðungur starfsfólks starfar. Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði. 



Var efnið hjálplegt? Nei