Viltu vinna í orku og iðnaði á Austurlandi?

Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum starfskrafti á skrifstofu EFLU Austurlandi í fagteymi iðnaðar og orku. Starfsstöð er á Austurlandi.

Helstu verkefni

  • Hönnun raflagna í iðnaðarumhverfi og íbúðarhúsnæði
  • Hönnun rafdreifingar og aflskápa
  • Gerð kostnaðaráætlana, eftirlit og samskipti við viðskiptavini
  • Verkefnastýring
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniviðmið

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. rafvirkjun, rafiðnfræði, rafmagnsverk- eða tæknifræði
  • Reynsla af raflagnahönnun er kostur
  • Reynsla í notkun Autocad og Revit er kostur
  • Nákvæmni, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Samskipta- og samstarfsfærni
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt

Nánari upplýsingar veitir Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, sérfræðingur á mannauðssviði.

Farið er yfir umsóknir jafnóðum og þær berast. Starfið verður í auglýsingu þar til réttur einstaklingur finnst.

Sækja um starf


Vinnustaðurinn EFLA

EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni.

EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Um fjórðungur starfsfólks EFLU starfar á landsbyggðinni.

Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.

Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri.


Var efnið hjálplegt? Nei