Nordic Built sáttmálinn

Við, sem þátttakendur í norrænni mannvirkjagerð, hyggjumst taka höndum saman og nýta sameinaða krafta okkar til að leggja fram sjálfbærar lausnir sem kallað er eftir á Norðurlöndunum og víða um heim.

Stundin er runnin upp og áherslur Nordic Built-sáttmálans munu vísa veginn.

Okkar fyrirheit

Við heitum því að hafa forgöngu um að innleiða meginreglur Nordic Built í verki og viðskiptaáætlunum. Við heitum því að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að geta lagt fram samkeppnishæfar hugmyndir að sjálfbæru manngerðu umhverfi sem gagnast notendum og mannvirkjageiranum á Norðurlöndum og um allan heim.

Meginreglur Nordic Built

Við hyggjumst skapa manngert umhverfi sem:

  1. Er hannað er fyrir fólk og eykur lífsgæði
  2. Eykur til muna sjálfbærni í mannvirkjagerð sem rekja má til nýsköpunar og góðrar þekkingar
  3. Samþættir borgarlíf og náttúrugæði
  4. Nær markmiðinu um enga losun á vistferlinu
  5. Er hagnýtt, snjallt og fagurfræðilega aðlaðandi, byggt á norrænni hönnunarhefð eins og hún gerist best
  6. Er sterkbyggt, varanlegt, sveigjanlegt, sígilt og endingargott
  7. Nýtir staðbundnar auðlindir og er aðlagað staðháttum
  8. Er skapað og viðhaldið í gagnsæju samstarfi þvert á landamæri og greinar
  9. Styðst við lausnir sem staðfæra má og nota um allan heim
  10. Bætir hag fólks, atvinnulífs og umhverfisins

Okkar boð

Við, sem þátttakendur í norrænni mannvirkjagerð, bjóðum norrænum ríkisstjórnum og öðrum stjórnvöldum, fjárfestum og fjármálastofnunum, notendum og húseigendum, orkugeiranum og öllum öðrum hagsmunaaðilum, að taka höndum saman og styðja viðleitni okkar til að hraða breytingum í átt að sjálfbæru manngerðu umhverfi.

Nánari upplýsingar um Nordic Built

Til baka  



Var efnið hjálplegt? Nei