Samfélagsskýrsla EFLU 2015
EFLA er aðili að Global Compact og styður félagið við góð verk á sviði umhverfis- og samfélagslegra málefna, hvort heldur sem er í innri eða ytri starfsemi fyrirtækisins. Þátttakendur að sáttmálanum gefa út skýrslu árlega sem gerir grein fyrir þeim viðmiðunum sem hefur verið unnið að og hefur því fyrsta samfélagsskýrsla EFLU verið gefin út.
Þar má finna upplýsingar um árangur og framgang fyrirtækisins, mælanleg umhverfismarkmið, verkefnum tengdum samfélagslegri ábyrgð og birtar lykiltölur umhverfisþátta í grænu bókhaldi.