Loftmyndir og land-mælingar
EFLA nýtir nýjustu tækni í drónamyndum, þrívíddarskönnun og GPS-mælingum til að tryggja áreiðanlegar niðurstöður sem nýtast við ákvarðanatöku, skipulag, hönnun og framkvæmdir um allt land.
Við tryggjum viðskiptavinum áreiðanlega yfirsýn, betri stjórntæki og aukið öryggi í verkefnum sínum.

Þarftu þrívíddarskönnun, nákvæma GPS-mælingu eða loftmynd af svæði?
EFLA býður upp á mælingar- og landupplýsingalausnir fyrir opinbera aðila, fyrirtæki og einstaklinga sem þurfa nákvæmar upplýsingar hvar sem er á landinu. Við bjóðum upp á sérsniðnar lausnir fyrir fjölbreytt verkefni sem veita betri yfirsýn yfir svæði og mannvirki og tryggjum nákvæmar og áreiðanlegar niðurstöður og hagkvæma og skilvirka vinnslu gagna.

Landmælingar
Við bjóðum upp á fjölbreytta landmælingaþjónustu sem byggir á alstöðvum, GPS-búnaði og þrívíddarskönnun. Meðal verkefna eru:
- Innmælingar af byggingum
- Vöktun framkvæmda eða mannvirkja
- Staðsetning á byggingum og tækjum
- Mælingar á landamerkjum og lóðamörkum
- Þrívíddarskönnun innan- og utanhúss

Dróna- og myndmælingar
Nýjustu lausnir í drónatækni gera okkur kleift að skila afurðum með sentimetra-nákvæmni á stórum svæðum. Við bjóðum meðal annars upp á:
- Klassískar loftmyndir
- Lidarmælingar
- Hitamyndamælingar
- Fjölsviðsmyndir
Myndmælingar með drónatækni nýtast til að útbúa loftmyndamósaík af stórum svæðum, hæðarlíkön, þrívíddarlíkön og ásýndarmyndir.

Landupplýsingar og kortavefsjár
Gögn sem tengja saman staðsetningu og upplýsingar eru mikilvægur grunnur fyrir skipulag, rannsóknir, náttúruvernd og opinberar framkvæmdir. EFLA veitir ráðgjöf og þjónustu við:
- Uppbyggingu landfræðilegra gagnagrunna
- Stöðlun gagna samkvæmt gæðareglum
- Utanumhald og uppfærsla gagna
- Miðlun gagna til starfsfólks og viðskiptavina
- Birtingu landupplýsinga á sérsniðnum kortavefsjám
Með notendastjórnun og öryggri innskráningu geta viðskiptavinir haldið utan um sín gögn án þess að þau birtist í opnu aðgengi. EFLA tryggir þannig gagnaöryggi í takt við kröfur nútímans.
Sérfræðingar í mælingum og landupplýsingum
Mælingateymi EFLU samanstendur af sérfræðingum með þekkingu í jarðfræði, verkfræði og upplýsingatækni. Við sérhæfum okkur í landmælingum, loftmyndum og landupplýsingum og tryggjum að gögnin séu hagnýt, aðgengileg og í hæsta gæðaflokki. Við höfum margra ára reynslu af fjölbreyttum verkefnum í mælingum og landupplýsingum um allt land. Verkefnin spanna allt frá nákvæmum innmælingum einstakra bygginga yfir í umfangsmiklar drónamyndir á kílómetrasvæðum.
Við vinnum með opinberum aðilum, fyrirtækjum og einstaklingum sem þurfa nákvæmar upplýsingar um land, mannvirki eða framkvæmdir, hvort sem um ræðir skipulagsverkefni, lóðamörk, eftirlit eða rannsóknir. Reynslan tryggir að við getum boðið hagkvæmar lausnir sem nýtast jafnt í skipulagi, rannsóknum og framkvæmdum. Helstu lausnir eru:
- Þrívíddarlíkön
- Loftmyndamósaík og hæðarlíkön
- Innmælingar og staðsetningar bygginga og lóðamarka
- Hitamyndir og fjölsviðsmyndir
- Landfræðilegir gagnagrunnar og kortavefsjár (nánari upplýsingar má finna hér)
Hafðu samaband við sérfræðinga okkar

Sérfræðingur í landmælingum, 3D-skönnun, hönnun, loftmyndaflugi og myndmælingum.

Sérfræðingur í landupplýsingum, gagnavinnslu og -miðlun og stafrænni kortagerð.

Sérfræðingur í landmælingum og 3D-skönnun.

Sérfræðingur í loftmyndaflugi, myndmælingum og myndvinnslu.