Eldar
Eldar er hugbúnaðarlausn sem hjálpar mötuneytum, matsölustöðum og stofnunum að bæta rekstur og draga úr umhverfisáhrifum.
Þar birtast kolefnisspor, næringargildi, ofnæmisvaldar og matarsóun á aðgengilegan og myndrænan hátt, á upplýsingaskjá eða í farsíma.


Lausnin í stuttu máli
Eldar, sem er byggt á Matarspori, er lausn þróuð fyrir mötuneyti og stærri eldhús. Lausnin kemur að góðum notum fyrir kokka og starfsfólk mötuneyta til að skipuleggja máltíðir út frá næringarinnihaldi og umhverfisáhrifum.
Með Eldar er hægt að stilla upp matseðli daga eða vikur fram í tímann, setja inn uppskriftir og athugasemdir til samstarfsfólks í mötuneyti og vista allt í gagnagrunni sem einfalt er að sækja í.
Upplýsingar um næringarinnihald, hráefni og jafnframt kolefnisspor máltíðar hvers dags birtast þeim sem sækja mötuneytin og njóta matarins.
Með Eldar er hægt að einfalda yfirsýn í eldhúsinu, upplýsa neytendur mötuneyta með skýrum hætti og jafnframt taka jákvæð skref í átt að minni matarsóun og umhverfisvænni ákvörðunum í eldhúsinu.
Eldar er í boði bæði á íslensku og ensku.
Fyrir hvern er Eldar?
Eldar hentar öllum sem reka eða sjá um mötuneyti, allt frá stórfyrirtækjum og háskólum til sjúkrahúsa og veisluþjónusta. Hugbúnaðurinn er einfaldur í innleiðingu og auðvelt að aðlaga að rekstri hvers fyrirtækis eða stofnunar.

Af hverju Eldar?
- Umhverfisvænt
- Eldar sýnir kolefnisspor, næringargildi og ofnæmisvalda fyrir alla rétti með rauntímagögnum
- Rekstraraðilar geta skráð og fylgst með matarsóun í rauntíma
- Eldar birtir þróun umhverfisáhrifa yfir árið og setur gögn í samhengi með samanburði við losun fólksbíls
- Notandinn getur skráð uppruna matvæla og flutningsmáta til að sjá áhrif flutninga á kolefnisspor
- Notendavænt
- Upplýsingaskjár og farsímaaðgangur fyrir notendur og starfsfólk
- Stjórnborð fyrir matráða og rekstraraðila til að greina gögn og fylgjast með þróun
- Rauntímagögn sem nýtast í græna bókhaldið og sjálfbærniskýrslur
- Aðstoðar matráðinn í skipulagi og rekstri eldhússins með yfirliti yfir uppskriftir og sérsniðnum kokkaskjá
- Hagnýtt
- Minni matarsóun og lægri kostnaður
- Aukin umhverfisvitund starfsfólks
- Auðveldar grænt bókhald og sjálfbærniskýrslur
- Byggt á vísindalegum gögnum fyrir yfir 500 matvæli greind með lífsferilsgreiningu (LCA)
Skráningarkerfi fyrir mötuneyti
Innan Eldar er skráningakerfi sem getur virkað sem sjálfstætt kerfi fyrir mötuneyti sem vilja einfalda og sjálfvirknivæða skráningu í mat. Kerfið hentar jafnt starfsmönnum og stjórnendum og veitir góða yfirsýn yfir notkun og viðskipti.
Hvað geta starfsmenn gert?
- Skráð sig í mat með aðgangskorti og kortalesara.
- Skráð gesti í mat.
- Fylgst með yfirliti yfir matarkaup á ákveðnu tímabili.
Hvað geta stjórnendur gert?
- Séð heildaryfirlit yfir kaup og notkun kerfisins.
- Skráð og breytt vörum og vörutegundum.
- Tekið út viðskipta- og notendayfirlit.
- Bætt við nýjum notendum, annaðhvort úr lista eða stökum notendum.
- Haldið utan um og haft yfirsýn yfir alla notendur kerfisins.
Með kerfinu er mögulegt að fá nauðsynlegan tækjabúnað, svo sem kortalesurum.
Áhrif Eldar á hegðun
Rannsóknir sýna að notendur breyta neysluhegðun sinni við það að fá betri upplýsingar. Þeir velja oftar rétti með minna kjöti og draga úr sóun. Betri upplýsingar geta því breytt hegðun og minnkað kolefnisspor samfélagsins.
Sjá rannsókn: Guðmundsdóttir, A. J. (2022). Implementation of a Footprint Calculator: A Qualitative Study on Meal Choice and Stakeholders’ Perceptions.

Hvernig er kolefnisspor máltíðar reiknað?
Eldar byggir á gagnagrunni með upplýsingum um losun gróðurhúsalofttegunda vegna matvæla. Umsjónarmaður slær inn magn hráefna í máltíð og tilgreinir hvort þau séu innflutt og hvaðan þau koma. Eldar sækir gögnin, reiknar kolefnissporið og birtir niðurstöðuna ásamt samanburði við losun meðalbíls á ákveðinni vegalengd.

Hvað er innifalið í kolefnisspori matvæla?
Kolefnissporið tekur mið af allri virðiskeðju matvæla:
- Breytingar á landnotkun
- Framleiðsla fóðurs
- Rekstur býlis
- Vinnslu, flutningum, umbúðum og sölu
Þannig er um heildarlosun á líftíma vörunnar að ræða.
Flutningar til Íslands
Eldar gerir notanda kleift að skrá hvort matvæli séu innflutt og hvaðan, auk þess hvort þau komu með flugi eða skipi. Þessi þáttur birtist sérstaklega í samanburði svo auðvelt sé að sjá áhrif flutninga á kolefnissporið.
Gögn fyrir íslensk matvæli
EFLA heldur utan um gagnagrunn Eldar og uppfærir hann reglulega. Gögn fyrir íslensk matvæli byggja á vistferilsgreiningum sem EFLA hefur unnið í samstarfi við Matís og Háskóla Íslands. Íslensk gögn liggja m.a. fyrir fyrir lambakjöt, nautakjöt, mjólk, eldislax, bleikju og ýmis grænmeti.

Munur á framleiðsluaðferðum og uppruna
Reiknirinn notar meðaltalsgögn sem byggja á fjölda býla og framleiðsluaðferðum víða um heim. Notandi getur valið uppruna matvæla til að reikna út áhrif flutnings.
Af hverju er kjöt með hátt kolefnisspor?
Kjötframleiðsla hefur almennt mun hærra kolefnisspor en grænmeti, aðallega vegna:
- Metanlosun frá jórturdýrum
- Landnotkun og fóðurframleiðsla
- Orkutap við umbreytingu plöntuorku í dýraafurðir
Munurinn er oft svo mikill að innflutt grænmeti með sjóflutningi getur verið umhverfisvænna en innlent kjöt.
Samanburður við bílakílómetra
Til að setja kolefnisspor í samhengi birtir Eldar hversu marga kílómetra meðalbíll þarf að aka til að losa jafn mikið og máltíðin. Reiknað er með meðallosun fólksbíla samkvæmt gögnum Orkuseturs.