Beint í efni

Forsmíðaðar útveggjaeiningar

Gluggaeiningar

Forsmíðaðar útveggjaeiningar sameina glugga, hurðir og útveggi í eina heildarlausn sem hentar sérstaklega vel fyrir stærri verkefni. Með þessari lausn er hægt að straumlínulaga byggingarferli bygginga, stytta framkvæmdatíma og tryggja gæði. 

Hafa samband
Framkvæmdarsvæði, tveir menn í öryggisfatnaði

EFLA hefur byggt upp sérfræðiþekkingu í hönnun og viðhaldi veðurhjúpa, með áherslu á forsmíðaðar útveggjaeiningar og gluggakerfi. Forsmíðaðar einingar eru skilvirk og áreiðanleg lausn fyrir nútímabyggingar og henta við íslenskar aðstæður, þar sem gæði og tæknilegt öryggi er tryggt áður en uppsetning hefst. Lykillinn að þessum ávinningi er fullkláruð og vönduð hönnun áður en framleiðsla fer af stað.

Einingarnar eru framleiddar af sérhæfðu starfsfólki við stýrðar aðstæður undir ströngu gæðaeftirliti sem tryggir samfelld gæði í framleiðsluferlinu. Með staðlaðri framleiðslu, álagsprófunum og ítarlegri hönnun eru allar lausnir fullmótaðar fyrir uppsetningu og því engar ákvarðanir skildar eftir til að leysa á verkstað. Þetta minnkar áhrif veðurs verulega þar sem um 70% vinnunnar fer fram utan byggingarstaðar.

Einingarnar er hægt að framleiða samhliða uppsteypu byggingar og koma fullunnar á verkstað, þar sem þær eru festar utan á burðarvirkið. Þetta einfaldar og hraðar framkvæmdum, eykur tæknilegt öryggi og tryggir mun betri gæði en við hefðbundin útveggjakerfi sem eru sett saman á staðnum.

Helstu eiginleikar

Gæði og öryggi

Framleiðslan fer fram við stýrðar aðstæður sem eykur tæknilegt öryggi á verkstað, gefur yfirsýn yfir framleiðsluna og tryggir gæði

Styttri uppsetningartími

Uppsetning á forsmíðuðum útveggjakerfum tekur aðeins brot af þeim tíma sem tekur að setja upp hefðbundin kerfi á framkvæmdarstað

Frá frumhönnun til eftirlits

Sérfræðingar EFLU finna lausnir, sjá um hönnun, rýni og gæðaúttektir í framleiðsluferlinu auk prófana og umsjónar á verkstað. Þjónusta okkar nær því yfir allt ferlið, frá upphafi til enda

Maður að tala

Ögmundur Ólafsson sérfræðingur í byggingatækniteymi EFLU fjallar um eðli forsmíðaðra útveggjaeininga og kosti þeirra fyrir íslenskar aðstæður

Maður að tala

Höskuldur Goði sérfræðingur í byggingatækniteymi EFLU ræðir helstu eiginleika forsmíðaðra útveggjaeininga og verkefni EFLU sem nýta lausnina

Hafa samband

Maður.
Höskuldur Goði Þorbjargarson
  • Byggingatækni
  • Byggingar
  • Reykjavík
EFLA - Forsmíðaðar útveggjaeiningar