Gagnaland og Kort.is

Hágæða loftmyndataka og gagnaskipulag fyrir sveitarfélög
EFLA býður sveitarfélögum öfluga og sérhæfða þjónustu á sviði loftmyndatöku og gagnavinnslu með drónum. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum tekið fjölda loftmynda af þéttbýli víðsvegar um landið og sérhæfir sig í myndum sem teknar eru í beinu yfirvarpi (true ortho).
Slíkar myndir tryggja samræmi og nákvæmni í afstöðu og uppfylla kröfur reglugerðar um merkjalýsingar, með mælingarnákvæmni á innan við 10 cm.
Gögnin nýtast sveitarfélögum í fjölbreyttum verkefnum, svo sem:
- Skipulagsvinnu og þróun byggðar
- Hönnun gatna, lagna og innviða
- Undirbúningi framkvæmda og útboðsgagna
- Greiningu á landnotkun og breytingum í umhverfi
- Margt fleira
Tæknilýsing
- Upplausn mynda er 2,5 cm – 5 cm greinihæfni
- Mælinákvæmni sem er innan við 10 cm
- Afhendingartími er innan sjö virkra daga frá myndatöku
- Gæðakerfi: Sjálfvirk útfelling á fólki og ökutækjum úr myndum til að tryggja persónuvernd og hreina yfirborðsmynd.
Sérfræðingar EFLU vinnur úr myndunum og býr til nákvæm hönnunargögn sem styðja við stefnumótun og ákvarðanatöku. Til viðbótar hefur fyrirtækið þróað þrívíddarmyndir sem nýtast sérstaklega vel í skipulagsferlum og kynningu á verkefnum fyrir íbúa og hagaðila.
Öll gögn fara í gegnum Gagnaland, miðlægt kerfi sem tryggir örugga miðlun, afritun, gæðavöktun og samræmingu gagna. Gögnin eru afhent með WMS- eða WFS-tenginum, eða í því viðmóti sem hentar hverju sveitarfélagi best.

Samanburður á kortum
EFLA hefur á að skipa öflugu mælingarteymi sem starfar víðsvegar um landið og getur veitt þessa þjónustu bæði hratt og örugglega í öllum landshlutum. Með áherslu á fagmennsku, nákvæmni og samvinnu er markmiðið að styðja sveitarfélög í að taka upplýstar og traustar ákvarðanir og miðla upplýsingum áfram til sinna íbúa.
EFLA býður upp á hágæða loftmyndatöku með DJI Matrice E4 dróna og nákvæma staðsetningu með GNSS, sem hentar sérstaklega vel til kortlagningar og greiningar á yfirborði. Þjónustan er sniðin að þörfum sveitarfélaga, verkfræðistofa og annarra aðila sem vinna með skipulag og hönnun innviða.
Hafðu samband hér fyrir frekari upplýsingar