Hátíðarkveðja EFLU
Við sendum viðskiptavinum okkar, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum hugheilar óskir um gleðilega hátíð um leið og við þökkum fyrir samskiptin og samstarfið á árinu sem er að líða.
Það er okkar von að nýja árið muni færa þér gleði, farsæld og gæfu.
Gleðilega hátíð!
Nú árið er liðið...
Nú þegar árið er að renna sitt skeið er við hæfi að staldra við og líta yfir farinn veg. Árið 2025 var ár fjölbreyttra verkefna, lifandi samtals og stöðugrar þróunar hjá EFLU.
Sérfræðingar fyrirtækisins komu að krefjandi verkefnum á sviði innviða, mannvirkja og umhverfismála, miðluðu þekkingu sinni á ráðstefnum og málþingum og tóku virkan þátt í umræðu um framtíðarsýn, sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. Um leið var lögð rík áhersla á að byggja brýr til yngri kynslóða, samstarfsaðila og samfélagsins alls með fræðslu, samræðu og stuðningi við uppbyggjandi verkefni.
Allt árið einkenndist af samvinnu, nýsköpun og ábyrgð gagnvart framtíðinni. Við fögnuðum árangri, studdum við samfélagið í gegnum Samfélagssjóð EFLU og hlúðum að mannauðinum sem er kjarninn í starfseminni. Þannig mótaðist árið 2025 af sameiginlegri sýn um að skapa varanleg verðmæti, hvort sem þau voru tæknileg, samfélagsleg og umhverfisleg. Með þakklæti fyrir samstarfið á árinu sem er að líða hlökkum við til að halda áfram vegferðinni saman á nýju ári.
Nýtt ár - ný tækifæri
Við hjá EFLU tökum fagnandi á móti nýju ári og stefnum að því að gera enn betur á árinu 2026. Í því felst virkara samstarf við viðskiptavini og samstarfsaðila.
Kærar þakkir fyrir gott og gjöfugt samstarf og samtal á liðnum árum.
Kveðja, starfsfólk EFLU.