Kort.is

Kort.is sameinar loftmyndir, gagnagrunn, vefþjónustur og sérlausnir í eitt kerfi. Kerfið hentar sérstaklega sveitarfélögum, stofnunum og verkfræðistofum þar sem það einfaldar gagnaleit, flýtir afgreiðslu skipulagsmála, bætir yfirsýn og styður við markvissari og betur upplýsta ákvörðunartöku.

Kort.is byggir á traustum gagnainnviðum þar sem öll vinnsla, allt frá öflun og gæðaprófunum til birtingar gagna, er unnin samkvæmt stöðluðum ferlum. Loftmyndirnar eru teknar með drónum í beinu yfirvarpi með mælinákvæmni innan við 10 cm, í samræmi við kröfur reglugerðar um merkjalýsingar. Það tryggir áreiðanleg gögn og samræmda framsetningu á öllu kortasvæðinu.
Kort.is er opið öllum, en áskrifendur fá einnig aðgang að öruggri gagnageymslu þar sem hægt er að vista, stýra og nálgast eigin gögn með einum smelli.
Kerfið er notendavænt og virkar jafnt í tölvum sem snjalltækjum.
Helstu eiginleikar
- Minna flækjustig
Heildarlausn sem sameinar loftmyndir, landupplýsingar og gagnagrunna á einum stað. Notendur þurfa því ekki að flakka á milli ólíkra lausna, sem skilar sér í hraðari afgreiðslu, minni gagnaleit og betri yfirsýn.
- Sérsniðnir aðgangar
Hver notandi fær aðgang sem er sérsniðinn að hans hlutverki og þörfum. Hægt er að fá bæði opna útgáfu af kerfinu fyrir almenning og lokaða, örugga útgáfu með innskráningu fyrir sértæk gögn. Með sveigjanlegri aðgangsstýringu er hægt að ákveða nákvæmlega hvaða upplýsingar eru sýnilegar hverjum.
- Gæði loftmynda og landmælinga
Kort.is byggir á hágæða loftmyndum og nákvæmum mælingum sem standast strangar gæðakröfur og nákvæmnisprófanir. Myndefnið er tekið og unnið samkvæmt stöðluðum ferlum sem tryggja áreiðanleika í öllum aðstæðum.

Kristófer Tómasson, sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs hjá Bláskógabyggð, og Reynir Sævarsson, sérfræðingur á sviði viðskiptaþróunar og nýsköpunar, fara yfir það hvernig Bláskógabyggð nýtir Kort.is.

Drífa Þrastardóttir, verkefnastjóri á tæknideild hjá Hveragerðisbæ, og Reynir Sævarsson, sérfræðingur á sviði viðskiptaþróunar og nýsköpunar, fara hér yfir kosti Kort.is.
Hafa samband
