Beint í efni

Lagareldi og sjávarútvegur

Þarftu ráðgjöf í fiskeldi, vinnslu eða orkunýtingu?

overview of laxey

EFLA hefur veitt lagareldis- og sjávarútvegsgeiranum þjónustu um áratugaskeið, á flestum sviðum verkfræði og tækni. Við bjóðum upp á nýstárlegar lausnir með nýjustu tækni og öflugu teymi sérfræðinga sem veitir alhliða ráðgjöf fyrir verkefni í landeldi og sjávarútvegi.

Sérfræðiþekking í fiskeldisráðgjöf

Við aðstoðum viðskiptavini með:

  • Forkönnun og viðskiptaþróun
  • Hönnun og verkefnastjórnun
  • Gangsetning og útfærsla tæknikerfa

Þjónustan nær yfir mat á umhverfisáhrifum, frumhönnun og kostnaðaráætlanir. Við hönnum sjódælingu, varmaendurheimt og frárennsliskerfi, auk fiskikerja og bygginga með rafdreifingu, varaafli og sjálfvirknikerfum. Allar lausnir eru samræmdar í BIM.

Landscape, mirror-smooth water where the land lies in headlands out onto the lake. Mountain with snow patches in the background, calm weather

Fiskeldi og framleiðsla sem sérgrein

Við höfum víðtæka reynslu af:

  • Fiskeldi á landi
  • Mjöl- og lýsisframleiðsla
  • Rafvæðingu og orkunýtingu

Við leggjum áherslu á öryggi og hagkvæmni og höfum komið að fjölmörgum verkefnum tengdum stjórnkerfum, sjálfvirkni, skynjurum, umhverfismálum og orkuskiptum. Þekking okkar á gagnavinnslu og samþættingu iðntölvukerfa tryggir áreiðanlegar lausnir.

Þjónustusvið EFLU í lagareldi og sjávarútvegi:

  • Hönnun stjórn- og eftirlitskerfa
  • Véla- og vinnslukerfi
  • Byggingahönnun
  • Hönnun hreinsikerfa
  • Öryggis- og umhverfisráðgjöf
  • Orkunýting og raforkuráðgjöf
  • Rafvæðing fóðurpramma
  • Sjálfvirknigreining, róbótar og cóbottar
  • Skynjarar og mælitækni

Áreiðanleiki í fyrirrúmi

Markmið okkar er að skila hönnun sem tryggir rekstraröryggi og tæknilegan áreiðanleika í fiskeldi, fiskveiðum og vinnslu. Með BIM-samhæfingu og gæðahönnun tryggjum við samræmingu hönnunar, innkaupa og framkvæmdar og lágum kostnaði. Verkefnin eru víðs vegar um landið, stór sem smá, og við leggjum áherslu á nærþjónustu og traust samstarf.

Hafðu samband við sérfræðinga EFLU

Portrait of a man, green plants and wooden panel in background
Skúli Björn Jónsson
  • Iðnaður
  • Iðnaður
  • Reykjavík
EFLA - Lagareldi og sjávarútvegur