Beint í efni

Prófanir á steinefnum

Nákvæmar prófanir á steinefnum og jarðefnum eru forsenda öruggrar og vandaðrar mannvirkjagerðar. Á rannsóknarstofu EFLU nýtum við sérhæfðan búnað og staðlaðar aðferðir til að meta gæði, styrk og samsetningu efna.

Steinar.

Þjónusta EFLU

Prófunar- og jarðtæknirannsóknir veita áreiðanlegar, staðlaðar upplýsingar um gæði og eiginleika jarðefna og bergs sem eru lykilforsenda öruggrar og hagkvæmrar mannvirkjagerðar. Á rannsóknarstofu EFLU starfa reynslumiklir sérfræðingar í jarðtækni sem sinna undirbúningi, framkvæmd og stjórnun rannsókna fyrir fjölbreytt verkefni. Þjónustan nýtist fjölbreyttum hópi aðila, allt frá fyrirtækjum í húsbyggingum, vegagerð og innviðauppbyggingu til einstaklinga og landeigenda sem vilja gæðaprófa jarðefni fyrir sölu eða nýtingu.

Með markvissum forrannsóknum, efnisprófunum og eftirlitsmælingum styðjum við betri nýtingu jarðefna, hagkvæmara efnisval og minni umhverfisáhrif. Rannsóknarstofa EFLU er vel búin tækjum til rannsókna á setlögum og bergi og framkvæmir allar helstu jarðtækniprófanir samkvæmt nýjustu stöðlum. Sérfræðingar EFLU annast sýnatöku, úrvinnslu og túlkun niðurstaðna og veita ráðgjöf sem nýtist beint í hönnun, ákvarðanatöku og örugga framkvæmd verka.

Þjónusta sem hægt er að treysta á

Rannsóknarstofa EFLU

Rannsóknarstofa EFLU annast víðtækar prófanir á steinefnum og jarðefnum með sérhæfðum búnaði og samkvæmt nýjustu stöðlum. Niðurstöður veita traustan grunn fyrir hönnun, ákvarðanatöku og örugga mannvirkjagerð.

Sérþekking og reynsla

Sérfræðingar EFLU búa yfir víðtækri þekkingu á jarðfræði, jarðtækni og mannvirkjagerð. Þeir vinna með prófunaniðurstöður í samhengi við raunveruleg verkefni og tryggja að þær nýtist með markvissum hætti.

Traust ráðgjöf

EFLA veitir faglega ráðgjöf frá sýnatöku til túlkunar niðurstaðna og áframhaldandi ráðgjafar. Með hraðri og áreiðanlegri þjónustu er dregið úr áhættu, aukin gæði verkefna og stuðlað að hagkvæmni til lengri tíma.

Hellir, berg og mælingartæki ofan í jörðinni

Jarðfræði og jarðtæknilausnir

Traust þekking á jarðlögum og berggrunni er grunnforsenda öruggrar og hagkvæmrar mannvirkjagerðar. EFLA veitir heildstæða ráðgjöf á sviði jarðfræði, bergtækni og jarðtækni, allt frá frumrannsóknum og greiningu jarðfræðilegra aðstæðna til hönnunar grundunar og tæknilegra lausna.

Með vönduðum vettvangsrannsóknum, mælingum og prófunum á jarðefnum og bergi sköpum við traustan grunn að upplýstri ákvarðanatöku í hönnun og framkvæmdum. Markmiðið er að minnka óvissu snemma í ferlinu, draga úr áhættu og stuðla að öruggari, hagkvæmari og sjálfbærari mannvirkjum.

EFLA hefur yfir að ráða öflugum búnaði til jarðtæknirannsókna, þar á meðal borbúnaði og handtækjum. Á rannsóknarstofu EFLU eru framkvæmdar ítarlegar prófanir á jarðefnum og bergi sem veita traustan grundvöll fyrir útreikninga, áhættumat og ákvarðanatöku á hönnunar- og framkvæmdatíma.

Prófanir á steinefnum og jarðefnum:

  • Kornastærðardreifing (sáldurferill)
  • Varmaleiðni jarðefna (varmaviðnám)
  • Styrkleikapróf (Los Angeles)
  • Kornarúmþyngd og mettivatn
  • Laus rúmþyngd
  • Húmus
  • Hydrometer
  • Saltmagn
  • Alkalívirkni
  • Berggreining
  • Brothlutfall malar
  • Kornalögun (kleyfnistuðull)
  • Proctorpróf
  • Bg-stuðull
  • Lektarpróf
  • Hluti skeljabrota
  • Mohs-hörkupróf
  • Einása brotstyrkur bergkjarna o.fl.

Hafa samband

Vigdis_Bjarnadottir
Vigdís Bjarnadóttir
  • Jarðtækni og jarðfræði
  • Samfélag
  • Reykjavík
Prófanir á steinefnum