Samfélagsleg ábyrgð í verki
Hjá EFLU er samfélagsleg ábyrgð samofin allri starfsemi fyrirtækisins. Við trúum því að verkfræðileg þekking og lausnamiðuð nálgun geti haft raunveruleg og jákvæð áhrif.


Grænvangur
EFLA hefur verið virkur þátttakandi í starfi Grænvangs allt frá stofnun hans árið 2019 og lagt sitt af mörkum við þróun loftslagslausna og orkuskipta í gegnum fjölbreytt verkefni og samstarf. Með því hefur EFLA tekið virkan þátt í að móta framtíðarsýn um kolefnishlutlaust og sjálfbært Ísland.
Stjórn Grænvangs er skipuð tíu fulltrúum frá atvinnulífinu og hinu opinbera. Guðmundur Þorbjörnsson, sérfræðingur á sviði viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá EFLU, hefur verið fulltrúi fyrirtækisins í stjórn Grænvangs frá stofnárinu 2019. Þátttaka EFLU í stjórn og starfsemi Grænvangs endurspeglar skuldbindingu fyrirtækisins til að vera leiðandi í sjálfbærni og nýsköpun á sviði orkumála og loftslagslausna.
Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda með það að markmiði að stuðla að framþróun í loftslagsmálum og grænum lausnum. Vettvangurinn hvetur til samtals þar sem þverfaglegar lausnir og samtakamáttur ólíkra greina eru leiðarljósið í átt að kolefnishlutleysi.
Hlutverk Grænvangs er að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og styðja við markmið um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040. Samhliða innlendum aðgerðum styður Grænvangur einnig við útflutning grænna lausna frá Íslandi í gegnum markaðsverkefnið Green by Iceland.