Steypu-rannsóknir
Rannsóknarstofa EFLU er vel tækjum búin til steypurannsókna og getur séð um allar helstu prófanir og rannsóknir á sviði múrs og steinsteypu.

Þjónusta EFLU
Á rannsóknarstofu EFLU eru framkvæmdar rannsóknir og prófanir á steinsteypu, steinefnum og múr. Við veitum ráðgjöf og eftirlit með múr og steypuvinnu ásamt prófunum á efnum til steypugerðar. Á rannsóknarstofu EFLU starfa sérfræðingar í fremstu röð með áratuga reynslu sem taka að sér slíkar prófanir og rannsóknir.
Þjónusta sem hægt er að treysta á
- Rannsóknarstofa EFLU
Á rannsóknarstofu EFLU eru framkvæmdar prófanir og rannsóknir á steinsteypu, steinefnum og múr samkvæmt nýjustu stöðlum.
- Sérþekking og reynsla
Sérfræðingar EFLU búa yfir áratuga reynslu og djúpri þekkingu á rannsóknum og prófunum í mannvirkjagerð.
- Traust ráðgjöf
EFLA veitir faglega ráðgjöf og eftirlit með múr- og steypuvinnu, ásamt prófunum á efnum til steypugerðar.

Prófanir á ferskri steypu og múr
- Loftmagn
- Sigmál
- Rúmþyngd
- Hitamyndun (semi adiabatic aðferð)
Prófanir á harðnaðri steypu og múr
- Brotþol
- Þrýstiþol, beygjutogþol, kleyfniþol, brotorkumælingar o.fl.
- Fjaðurstuðull
- Rýrnun
- Lofttalning
- Frostþol
- Klórmagn, klórleiðni
- Steypuhulumælingar
- Binditími sements
- Vatnsþörf sements
- Blæði
- Floteiginleikar o.fl.
Hafa samband

