Töluleg straumfræði

Töluleg straumfræði (CFD) er aðferð sem nýtir tölvuhermanir til að líkja eftir og leysa flókin varma- og straumfræði verkefni. Með CFD er hægt að spá fyrir um flæði lofts, vökva og varma.

EFLA beitir vind- og straumgreiningum í fjölbreyttum verkefnum. Þar má nefna greiningar á vindafari við byggingar og innganga, áhrif bygginga á veðurfar í þéttbýli, sem og greiningar á vindafari á stærri svæðum þar sem vindur hefur áhrif á samgöngur og öryggi. Niðurstöður eru settar fram á sjónrænan hátt sem auðveldar samanburð og skilning hönnuða og verkkaupa. Í kjölfar greininga leggur EFLA fram tillögur að breytingum eða mótvægisaðgerðum sem byggja á niðurstöðum hermananna.
Notkun á tölulegri straumfræði hefur aukist verulega á undanförnum árum, ekki síst vegna aukins aðgengis að sérsniðnum hugbúnaði, öflugri reiknigetu og hraðari hermunum.
Sérfræðiteymi EFLU í vindgreiningum hefur víðtæka reynslu í greiningum á veðurfarsgögnum og hermunum með reiknilíkönum. Þetta veitir verkkaupum og hönnuðum skýra innsýn áður en farið er í framkvæmdir.
Helstu eiginleikar
- Nákvæmar og sjónrænar niðurstöður
Hermanirnar eru nákvæmar og gefa góða mynd af því hvernig vatn, varmi eða loft flæða um rými eða svæði. Niðurstöður eru settar fram með skýrum, sjónrænum hætti.
- Hagkvæmar mótvægisaðgerðir
Með tölulegri straumfræði er hægt að meta áhrif ólíkra úrbóta og hagræða þannig hönnun áður en ráðist er í framkvæmdir. Þetta getur komið í veg fyrir óþarfa kostnað.
- Gæði og öryggi
Með tölulegum straumfræðihermunum er hægt að auka gæði í ýmsum verkefnum. T.d. hámarka nýtingu útisvæða og stuðla að öryggi og þægindi fólks útfrá vindafari eða auka gæði innivistar.

Nína Gall Jörgensen byggingarverkfræðingur hjá EFLU fer hér yfir kosti þess að nýta tölulega straumfræði og ávinninginn af slíkum greiningum fyrir fagaðila.
Hafa samband
