Beint í efni

Umhverfis- og efnarannsóknir

Sérfræðingar EFLU hafa víðtæka reynslu og sérþekkingu á sviði umhverfisvöktunar, þar með taldar fjölbreyttar mælingar á vatni, gastegundum og jarðvegi, auk rennslis- og efnagreininga.

árfarvegur

Okkar þjónusta

Mælingarnar styðja við starfsleyfiskröfur og hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að fá skýra mynd af losun og tækifærum til úrbóta. Það getur til dæmis falist í uppsetningu hreinsibúnaðar eða innleiðingu bættrar framleiðslutækni.

EFLA rekur eigin rannsóknarstofu og er jafnframt í öflugu samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknarstofur. Auk þess höfum við yfir að ráða fullkomnum búnaði til sýnatöku, gasmælinga og eðlismælinga, svo sem á pH (sýrustigi), leiðni og hita.

rannsoknarstofa_tilraunaglos

Á meðal þjónustusviða eru:

Rennslis- og efnagreining frárennslisstrauma og sigvatns urðunarstaða

  • Skolprennsli sveitarfélaga
  • Nýting verðmæta úr frárennsli fiskvinnslu
  • Mælingar til að uppfylla starfsleyfiskröfur

Greining jarðvegsmengunar með XRF tækni

  • Áhættugreining vatnsmengunar vegna mannvirkja eða starfsemi nærri vatnsverndarsvæðum

Kælivatnsgreining iðnfyrirtækja

  • Starfsleyfiskröfur
  • Mat á hreinsun mengunarþátta og losun frá iðjuverum í sjávarviðtaka

Framleiðslustraumar matvælafyrirtækja

  • Mat á mengunar- og tæringarálagi matvælavinnslu á lagnir og umhverfi
  • Nýting aukaafurða í stað losunar í frárennsli

Efnagreining jarðvegs

  • Mat á næringargæðum moldar til ræktunar
  • Mat á mengun jarðvegs
  • Mælingar á hauggasi frá urðunarstöðum

Gas og loftgæðamælingar

  • Mat á vinnuumhverfi í framleiðslufyrirtækjum

Fjarvöktun á raka- og hitastigi

  • Viðhald mannvirkja
  • Raki og mygla í húsnæði

Þjónusta sem hægt er að treysta á

Víðtæk reynsla

Sérfræðingar EFLU hafa yfirgripsmikla þekkingu á þessu sviði.

Góð aðstaða

EFLA hefur sína eigin rannsóknarstofu og er í samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknarstofur.

Vel tækum búin

Tæki fyrir sýnatöku, gas- og eðlismælingar.

Hafa samband

Pall_Hoskuldsson
Páll Höskuldsson
  • Umhverfismál og vottanir
  • Samfélag
  • Reykjavík
EFLA - Umhverfis- og efnarannsóknir