Byggingar

Samskip | Höfuðstöðvar og vörumiðstöð

Samskip byggði nýjar höfuðstöðvar og vörumiðstöð á athafnasvæði fyrirtækisins við Sundahöfn í Reykjavík, alls um 27.629 m2


EFLA hafði heildarumsjón með verkefninu. 

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi
Samskip hf.

Verktími
2002 - 2006

Staðsetning
Sundahöfn, Reykjavík

Tengiliðir

Um hvað snýst verkefnið

Hlutverk EFLU var margþætt í þessu verki sem var boðið út í lokuðu alútboði. EFLA sá um gerð þarfagreiningar og alútboðsgagna ásamt RTS og Lagnatækni.

EFLA sá um vörustjórnunarhluta (logistic)  hússins sem var krefjandi verkefni þar sem starfsemi hússins er margbrotin og tengist bæði hafnarsvæðinu, sem það stendur á, og atvinnulífinu í landi.

EFLA hafði einnig með höndum umferðarskipulag á svæðinu en þar er um mjög marga mismunandi umferðarstrauma með misjafnar þarfir að ræða á tiltölulega litlu svæði. Þessar breytingar höfðu áhrif á deiliskipulag svæðisins.

Í gerð alútboðsgagnanna fólst einnig þarfagreining og skilgreining á lágmarkskröfum s.s. til burðarvirkis, klæðningar og annarra þátta, en þar að auki gerði EFLA ásamt samstarfsfyrirtækjunum kostnaðaráætlun fyrir verkið.

EFLA sá um hönnunarstýringu f.h. verkkaupa á hönnunar- og framkvæmdatíma.

Hlutverk EFLU

  • Heildarumsjón með verkefni
  • Hönnunarstýring
  • Þarfagreining
  • Útboðsgögn
  • Logistic (vörustjórnun) hússins
  • Umferðarskipulag
  • Kostnaðaráætlun
Samskip


Var efnið hjálplegt? Nei